Frjáls verslun - 01.05.2002, Page 62
FRÉTTASKÝBING KflUPIN fl EDDU
Fallist í faðma
Tveir ólíkir fortíöarheimar hafa fallist í faðma. Með kaupum Björgólfs
Guðmundssonar á 68% hlut í Eddu - miðlun og útgáfu og samstarfi við Mál
og menningu er vonast til að Edda komist loksins á pað flug sem henni var
ætlað. Fyrirtækið hefursvigrúm til tveggja ára til að rétta afreksturinn.
Eflir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndin Geir Ólafsson
Upphaflega var ætlunin að eignast bara
hlut í fyrirtækinu og taka þátt í þessum
rekstri því að þetta er auðvitað stærsta
bókaútgáfufyrirtækið í landinu, sem á sína
sögu og djupu spor meðal þjóðarinnar. Hins
vegar kom fljótlega í ljós að fjárhagur fyrirtæk-
isins var verri en við höfðum áttað okkur á og
þá urðum við að taka á málinu á viðskipta-
legum forsendum. Við létum okkar ráðgjafa
gera áreiðanleikakönnun og skilgreiningu á
öllum þáttum fyrirtækisins. Viðræður lágu
niðri um tíma meðan aðrir voru að skoða hugs-
anleg kaup en við vorum tilbúnir til viðræðna á
réttum forsendum. Síðan fóru þessar viðræður
af stað aftur. Það var ekkert markmið í sjálfu
sér í upphafi að verða ráðandi aðili en það kom
af sjálfu sér þegar efnahagur og staða fyrirtæk-
isins kom í ljós. Islandsbanki vildi losna við sitt
hlutafé og Olafur Ragnarsson og hans fjöl-
skylda hafði haft það markmið að stíga ein-
hvern tímann út. I hlutaijáraukningunni keypti
Björgólfur því hlut íslandsbanka og Ólafs
Ragnarssonar og ijölskyldu þannig að núna
eru aðalhluthafar tveir og aðrir hluthafar
örlitlir" segir Páll Bragi Kristjónsson, stjórnar-
formaður Eddu - miðlunar og útgáfu og fufltrúi
Björgólfs Guðmundssonar, stærsta hluthafans
í fyrirtækinu.
Ættfræðíútgáfan sungið sitt vers Eftir að ljóst
varð um kaup Björgólfs á Eddu hefur verið
haft á orði að nú sé rússagullið komið aftur inn
í Mál og menningu en Björgólfur og sonur
hans, Björgólfur Thor, seldu eins og kunnugt
Páll Bragi Kristjónsson, starfandi stjórnarformabur
Eddu, segir að innan skamms eigi ýmsar nýjar
áherslur eftir að koma í Ijós innan Eddu en bókafor-
lögin haldi starfsemi sinni óbreyttri þó að Nýja bóka-
félagið og Þjóðsaga bætist í hóþinn. Þegar manna-
breytingar ber á góma segir hann að nýir eigendur
séu ekki „með sveðjurnar á lofti og höggvi ótt og títt.
Við viljum gera þetta skynsamlega og rólega. “
Myndir: Geir Olajsson