Frjáls verslun - 01.05.2002, Qupperneq 63
FRÉTTflSKÝRIMG KAUPIH A EÐDU
Við kaup Björgólfs á Eddu koma saman tveir álíkir menningarheimar,
Björgólfur og Páll Bragi úr Sjálfstæðisflokknum og Almenna bókafélaginu,
sem var á sínum tíma svar hægrimanna við þeim menningarítökum sem
vinstrimenn áttu áratugum saman í gegnum Mál og menningu.
Ólafur Ragnarsson og Halldór Guðmundsson í
bókabúð Máls og menningar. Myndin var tekin
um það leyti sem sameining Vöku-Helgafells og
Máls og menningar átti sér stað sumarið 2000.
Halldór verður áfram forstjóri Eddu en Olafur,
sem selt hefur hlut sinn t fyrirtækinu, hefur snúið
sér að skrifum og má m.a. búast við bók frá
honum um Halldór Kiljan Laxness.
er bjórverksmiðjuna Bravo í byijun þessa árs fyrir 40 milljarða
króna. Það má þvi sjálfsagt orða þetta þannig þó að gögn sem
hingað til hafa fundist staðfesti aðeins að stuðningur Sovét-
manna við Mál og menningu hafi að mestu leyti miðast við styrki
til útgáfu á sovéskum bókmenntum og enga verulega þýðingu
haft fyrir reksturinn. Mál og menning er fyrirtæki sem hefur
tvinnast saman við átök kalda stríðsins hér á
landi enda var fyrirtækið stofnað árið 1937 af
nokkrum róttækum rithöfundum, t.d. Halldóri
Kiljan Laxness, og menntamönnum sem
höfðu gefið út tímaritið Rauða penna. I þess-
um hópi var sovétsósíalistinn Kristinn E.
Andrésson sem stýrði Máli og menningu í 35
ár. Fyrirtækið hefur kynnst bæði meðbyr og
mótbyr. í byijun áttunda áratugarins gekk á
ýmsu í rekstrinum en fyrirtækið hafði verið
rekið með hagnaði um nokkurra ára skeið
áður en sameiningin við Vöku-Helgafell kom
til. Um miðjan tíunda áratuginn var rekstri
Máls og menningar breytt í hlutafélag, sem í
fyrstu var alfarið í eigu Bókmenntafélagsins
Máls og menningar en við sameininguna var
þetta hlutafélag lagt inn í Eddu til móts við
Vöku-Helgafell. Hlutabréfin voru hinsvegar
eign Eignarhaldsfélagsins Máls og menningar
- Heimskringlu. Hið sögufræga fyrirtæki Mál
og menning, sem hefur verið helsta vigi vinstri
menningarelitunnar í landinu, er í dag gjör-
breytt, ekki aðeins hefur losnað um tengslin
við vinstrihreyfinguna heldur má segja að nú
hafi vinstri- og hægrihreyfingin fallist í faðma.
Með Björgólfi Guðmundssyni og Páli Braga
Kristjónssyni eru þekktir rekstrarmenn komn-
ir inn í Eddu miðlun og útgáfú. Vinátta þeirra
tveggja og samstarf nær langt aftur. Þeir eru
báðir ,fæddir inn í Sjálfstæðisflokkinn" og hafa
starfað lengi saman. Páll Bragi er viðskipta-
fræðingur að mennt og starfaði hjá Almenna
bókafélaginu á sjöunda og áttunda áratugnum.
Hann var samstarfsmaður Björgólfs í Hafskip á
sínum tíma og veitti bókaútgáfúnni Þjóðsögu
forstöðu þegar hann og Björgólfur keyptu það
fyrirtæki árið 1998. Þeir gerðu ekki mikið með þann rekstur þar
sem ljóst var að „ættfræðiútgáfan hafði sungið sitt vers,“ eins og
Páil Bragi útskýrir það. „Við fórum að hugsa í aðrar áttir og það
varð til þess að við stofnuðum Nýja bókafélagið 1999. Við höfðum
ákveðnar áætlanir en gríðarlegar breytingar urðu á markaðnum
og þvi lögðum við ekki mikið í það.“