Frjáls verslun - 01.05.2002, Page 68
Fjörkálfurinn
Hótel KEA á Akureyri er upfiáhaldshótel Pálma Pálmasonar, markaðsstjóra hjá Glóbus.
Best að vera á KEA
Pálmi Pálmason, markaðsstjóri hjá Glóbus, ferðast mikið
innanlands sem utan og hefur gist víða. Hann er með
það á hreinu hvert uppáhaldsgistihúsið hans er hér á landi
og segir aðeins eitt koma til greina.
„Hótel KEA á Akureyri," segir hann ákveðinn. „Eg hef
gist þar mjög oft á undanförnum árum og alltaf verið
ánægður með það. Herbergin eru vinaleg og þægileg og
morgunverðurinn góður en ég legg talsvert upp úr þvi að fá
góðan morgunverð þegar ég er á ferðalagi. Maður borðar
yfirleitt á daginn annars staðar en á hótelinu en þarf að fara
vel saddur og sæll af stað út í daginn sem oft er erilsamur.
Hótelið er líka alltaf hreint og þokkalegt en það er eitt af því
sem ég tel mikilvægt við gististaði jafnframt alúðlegri þjón-
Haukur Þór Hauksson framkvæmdastjóri mætir í Árbæjar-
laugina á hveijum morgni, hvernig sem veðrið er, og hitt-
ir þar félaga sína sem ganga undir heitinu Pottormar og
þekkjast á svörtum sundhettum sem margir þeirra eru með.
„Eg fer í sund á morgnana til að hressa mig fyrir daginn
og koma blóðinu á hreyfingu,“ segir Haukur. „Eg syndi sam-
viskusamlega 200 metra í hvert sinn og nota tímann á meðan
til að leggja niður fyrir mér daginn. Svo sest ég í pottinn þar
sem ég hitti félagana og ræði við þá um eitt og annað sem er
á döfinni og að því búnu fer ég heim, fæ mér morgunverð
með börnunum og sendi þau í skólann og fer sjálfur í vinnu.
Betri byrjun á degi get ég ekki hugsað mér og hef gert þetta
allar götur frá því Arbæjarlaug var opnuð.“ [H
ustu.“ Hann segir staðsetninguna frábæra með mannlífið handan
við hornið, eina bestu sundlaug landsins á næsta leiti og notalegt
útsýni víða frá hótelinu yfir höfnina og Pollinn. BH
Haukur Þór Hauksson framkvæmdastjóri fer í sund á morgnana til
að hressa sigfyrir daginn og koma blóðinu á hreyfingu.