Frjáls verslun - 01.05.2002, Síða 69
Fjörkálfurinn
UPPÁHALDSLÍKAMSRÆKTIIM
Hleypur daglega
Það er fátt betra til að losna við streitu en að hreyfa sig. Það
veit Kjartan Kristjánsson, sem rekur Optical Studio gler-
augnaverslanirnar, fullvel enda hleypur hann langar vega-
lengdir á hveijum degi.
„Eg var eins og svo margir í viðskiptalífinu, stöðugt með
einhver mál sem þurfti að leysa og stundum stressaður,"
segir Kjartan. „Þá ákvað ég að prófa að hlaupa dálítið og
líkaði það vel. Ég fór að hlaupa daglega og sífellt lengdist
vegalengdin en ég hef tekið þátt í allmörgum maraþon-
hlaupum og lengri hlaupum. Þegar ég er erlendis hleyp ég
gjarnan fyrst á morgnana og svo á kvöldin til að losa mig við
streitu dagsins. Mér finnst mjög gott að nota þennan hlaupa-
tíma til að undirbúa daginn, setja í forgangsröð og skipu-
leggja hugsanir mínar, en ég rek sjö verslanir og það getur
verið allflókið að raða verkefnum niður.“
Kjartan, sem er í mjög góðu formi líkamlega, gerir fleira en
að hlaupa, því hann segist hjóla mikið, vera á línuskautum og
stunda fleiri íþróttir þegar hann getur. „Það er gott að skipta
um,“ segir hann, „og svo finnst mér afskaplega gott þegar ég
fer að veiða á Langanesi að hlaupa þar á ströndinni.“ 33
London er mín uppáhalds borg,“ segir Ragnar Birgisson, að-
stoðarforstjóri Norðurljósa. „Ég bjó í tvö ár í London þegar
ég var i námi og hef síðan litið á hana sem mína aðra heima-
borg. Ég þekki London mjög vel og hún hefur upp á mjög
mikið að bjóða, s.s. góð veitingahús, leikhús, bíó, söfn o.fl.
Þarna tala allir að sjálfsögðu ensku og því aldrei um nein
tungumálavandamál að ræða. London er einnig mjög þægi-
leg. Alltaf hægt að fá leigubíl eða fara með lest þangað sem
förinni er heitið. Það er ákaflega gott að versla þar og flestir
sem ég á viðskipti við í dag eru með útibú í London. Helsti
ókosturinn við borgina er hversu dýr hún er orðin.“ Q33
Ragnar Birgisson, aðstoðarforstjóri Norðurljósa, bjó í tvö ár í London.
Kjartan Kristjánsson hefur tekið þátt í allmörgum maraþonhlaupum.
London er borgin