Frjáls verslun - 01.05.2002, Qupperneq 71
Fjörkálfurinn
EFTIRMIIUIMILEG HESTAFERÐ
„Eg hefhestana mina í Víðidalnum á veturna en á sumrin fer ég
meðþá norður íAðaldal þar sem þeir una sér vel,“segir Haraldur,
sem gjarnan er kallaður Halli í Andra.
Á hestbaki í Vatnsdal
Það er einhver samsvörun við hesta og Norðurlandið og
þó menn séu búsettir í Reykjavík fara þeir gjarnan
norður þegar sumrar með hestana sína.
Haraldur Haraldsson, stjórnarformaður Áburðarverk-
smiðjunnar, er þekktur hestamaður. Hann notar hvert tæki-
færi til að ríða út og segir hestamennskuna þess eðlis að
lítið rými sé fyrir önnur áhugamál. Þó gefur hann sér tíma
daglega til að fara í sund og byrja daginn með því að spjalla
við vini og kunningja í Árbæjarlauginni.
„Eg hef hestana mína í Viðidalnum á veturna en á sumrin
fer ég með þá norður í Aðaldal þar sem þeir una sér vel,“
segir Haraldur, sem gjarnan er kallaður Halli í Andra. „Hesta-
mennskan er frábært tómstundagaman eða lifsmáti öllu
heldur og maður kynnist landinu á allt annan hátt riðandi en
í bíl og það er sérstaklega gaman að fara í reiðferð ef með í
för er fólk sem þekkir sögu staðanna sem farið er um.“
Halli segir þingeyskar heiðar eftirminnilegastar staða til
útreiða hvað sig snerti. „Það er afskaplega skemmtilegt að
ríða um þær og einkum ef maður lendir í sunnanáttum eða
sunnanþey sem er hlýr og notalegur. Heiðarnar eru ótrú-
lega ijölbreyttar og fallegar og alltaf eitthvað nýtt að sjá,
eins og reyndar á við um allar ferðir um landið. Eg ætla að
fara í sumar um Vatnsdalinn og Hópið en þar er svo grunnt
að auðvelt er að ríða þar. Eg fer með hópi manna og tilgang-
urinn er m.a. sá að fara með 50-60 hesta norður, þó svo þetta
sé öðrum þræði skemmtiferð, eins og hestaferðir eru. Allar
ógleymanlegar og allar frábærar og eiginlega ekki hægt að
fmna neina eina sem stendur uppúr.“ 31]
UPPAHALDSVEITIIMGASTAÐURIIMIM
Jóhannes Jónsson í Bónus gejur Sigga Hall toþþeinkunn.
Siggi Hall fær toppeinkunn
Það kemur svolítið hik á Jóhannes Jónsson þegar hann er
spurður hvert uppáhaldsveitingahúsið hans sé og hann
hugsar sig um. Hann segist hafa borðað svo víða og að
erfitt sé að að velja á milli. Honum er boðið að velja um veit-
ingahús bæði hér á landi og erlendis til að „auðvelda"
honum valið. Eftir dálitla umhugsun segist hann telja að
besta matinn fái hann hjá Sigga Hall. Verður svo ákveðinn
og segir það vera svo. Siggi Hall fær með öðrum orðum
toppeinkunn hjá Jóhannesi Jónssyni í Bónus. Œ]
BRAIMDARAR
Greitt fyrirfram
Bílstjóri sem var á ferð í Texas ók á kálf sem fór yfir
veginn. Bílstjórinn fór heim að bænum og útskýrði
atburðinn fyrir bóndanum og spurði hversu mikið hann
ætti að greiða fyrír kálfinn.
„I dag hefði hann verið um það bil 200 dollara virði,“
sagði bóndinn og dró seiminn. „En að sex árum liðnum
væri hann 600 dollara virði og ég vil fá þá.“
Bílstjórinn settist niður og skrifaði ávísun og rétti
bóndanum.
„Þetta eru 600 dollarar," sagði hann. „En ávísunin er
dagsett sex ár fram í tírnann..." [0
Golfbrúðkaup
Maður og kona stóðu við altarið, rétt í þann veginn að
gifta sig. Eiginkonunni tilvonandi var litið á brúð-
gumann og sá að hann var með golfkylfur við hlið sér.
„Hvað í ósköpunum ætlar þú að gera við golfkylfur í
kirkju? spurði hún alveg gáttuð."
„Nú, varla tekur þetta allan eftirmiðdaginn, eða hvað?“
svaraði brúðguminn sallarólegur. 10
71