Frjáls verslun - 01.05.2002, Blaðsíða 74
Kjartan Kristjánsson, sjóntœkjajrœðingur og annar eigandi Optical
Studio gleraugnaverslananna.
sportgleraugnaframleiðendum eins og Oakley og DKNY,“ segir
Kjartan. „Þessi verslun er vissulega tilraun hjá okkur, en hingað
til hafa sólgleraugu ekki verið mjög almennt í notkun á Islandi
miðað við notkun þeirra í útiöndum. Sala á sólgleraugum hér á
landi hefur að mestu farið fram á bensínstöðvum og í snyrtivöru-
búðum sem og öðrum verslunum þar sem ekki er til staðar nein
fagleg þekking á þessari vöru. Og þau sólgleraugu sem seld eru
á þessum stöðum eru í flestum tilfellum af lágum gæðastaðli,
bæði gler og umgjörð, og kosta þess vegna ekki mikið. Þau eru
svo sannarlega ekki meira virði en borgað er fyrir þau. I flestum
tilfellum er þetta framleiðsla frá Asíu án gæðastuðuls á gleri. Það
má segja að íslenskir sjóntækjafræðingar hafi sofið á verðinum
Anna Jóhannesdóttir, verslunarstjóri í Oþtical Studio Sól, Smáralind.
v
Heimsþekktír framleiðendur
120 ár hafa þeir Kjartan Kristjánsson og
Pétur Christiansen, sem báðir eru sjón-
tækjafræðingar, rekið gleraugnaversl-
anir. Það var árið 1982 sem þeir stofnuðu
Gleraugnaverslun Keflavíkur. Að sögn
Kjartans voru Suðurnesin vissulega nægi-
lega stórt markaðssvæði á þessum árum
svo að þar mætti reka gleraugnaverslun, en
ári seinna gerðu þeir félagar samning við
varnarliðið um rekstur gleraugnaverslunar
á varnarsvæðinu. Sú verslun hlaut nafnið
Optical Studio og var þessi verslun fyrsti
vísirinn að útrás fyrirtækisins frá Keflavík.
„Optical Studio er einkar þægilegt nafn á gleraugnaverslun,“
segir Kjartan. „Þetta er alþjóðlegt nafn sem allir geta borið fram,
en það er oft pínleg staða sem kemur upp í samskiptum við
erlenda birgja þegar útlendingurinn leggur í það að bera fram
orðið gleraugnaverslun. Það var síðar ákvörðun okkar eftir að
verslunum tjölgaði að nota nafnið Optical Studio sem samheiti
fyrir alla verslanir í samskiptum okkar við birgja erlendis. Versl-
unum flölgaði jafnt og þétt, við bættust Gleraugnaverslunin í
Mjódd, Gleraugnaverslun Suðurlands á Selfossi, Optical Studio
Duty Free í Leifsstöð og síðastliðið haust tvær verslanir í Smára-
lind, Optical Studio RX og Optical Studio Sól.“
Sérstök sólgleraugnaverslun Optical Studio RX er hefðbundin
gleraugnaverslun, Optical Studio Sól er aftur á móti einskonar
sól- og sportgleraugnadeild, sem sérhæft hefur sig í sölu á sól-
gleraugum, og er sú eina á þessu sviði hérlendis.
„Hér er á ferðinni ný gleraugnasérverslun sem að auki býður
fylgihluti eins og bakpoka og sportfatnað frá þekktum sól- og
74
og látið þessa grein gleraugnageirans líða
framhjá sér og þar með festa rætur í öðrum
verslunum í stað þeirra eigin.“
Breytt Viðhorf Viðhorf til sólgleraugna, eða
„eyewear“, er að breytast, því að nú eru gler-
augu orðin hluti af heildarmyndinni í klæða-
stíl og tísku. Islendingar eru svo sannarlega
engir eftirbátar annarra þjóða í þeim efnum,
nema síður sé. Hér á landi er sólin svo lágt á
lofti að geislar hennar smjúga beint inn í
augnbotnana, og það má færa rök fyrir þvf
að það sé jafnvel meira áríðandi að gæta vel
að sólgleraugnanotkun hér á landi heldur en sunnar á hnettinum.
Þar dugar til að mynda að vera með húfu með skyggni til að
varna því að sólargeislarnir fari inn í augnbotnana vegna þess
hversu sólin er hátt á lofti. Það hefur líka orðið hugarfarsbreyting
hjá fólki, en það gerir nú meiri kröfu til sjónarinnar og er meðvit-
aðra um að vernda hana.
„Markmiðið með sérverslun á sviði sólgleraugna er að
bjóða Islendingum vönduð sólgleraugu með háum glergæða-
staðli og faglega ráðgjöf við val á þessu mjög svo mikilvæga
varnartæki gegn útíjólubláum geislum sólarinnar. Þar er engin
tilviljum að yfir 70% atvinnumanna í íþróttum notar til að mynda
Oakley sólgleraugu en það er einfaldlega vegna þess að gæði
Oakley-glersins hefur hæstu einkunn í öllum óháðum gæða-
könnunum sem gerðar hafa verið nú síðustu ár. Frægir
Oakley-notendur eru menn eins og David Duval (golf), Aton
Bolton (100 m hlaup), Eddie Ervin, Montoya, Schumacher
(allir F1 ökumenn) og Haraldur Örn Everestfari, svo að
nokkrir séu nefndir," segir Kjartan. BIl
Optical Studio gleraugna-
verslanirnar bjóða upp á
gífurlegt úrval gleraugna og
sólgleraugna auk jylgihluta.
Verslanirnar eru sjö talsins,
par aftvœr í Smáralind.
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Ólafsson