Frjáls verslun - 01.05.2002, Page 79
Fjörkálfurinn
hitta þar félagana, jafnvel drekka með þeim morgunkaffið því
að nú er hægt að fá kaffi og með því víðast hvar og sums
staðar hefur skapast sú hefð að eftir sundferð setjast menn
niður og njóta þess að borða morgunverð í ró og næði áður en
farið er í vinnu. Sumir synda nokkrar ferðir og leggja niður
daginn á meðan, flokka verkefnin og eru þannig alveg tilbúnir
í eril dagsins.
Séu vöðvarnir aumir Það er ekki hægt að finna mikið betri
leið til að slaka á en að fara í sund. Séu vöðvarnir aumir er frá-
bært að liggja í heitu pottunum eða nuddpottunum og þeir
sem vilja stunda þægilega líkamsrækt synda nokkrar ferðir,
allt eftir getu og áhuga. Með því mýkjast allir vöðvar og
úthaldið eykst. í hádeginu er tilvalið að kíkja í næstu laug og
brjóta þannig upp daginn og ekki síður í lok vinnudags eða að
kvöldinu til að vinda ofan af sér. Hópar fólks hafa gert það að
vana, ekki síður en á morgnana, að hittast þannig og gjarnan
myndast mjög skemmtileg stemmning í pottunum. Enda er
haft á orði að vilji maður frétta hvað sé að gerast þá fari maður
í sund. Þar eru heimsmálin rædd, stjórnmálin krufin og
spjallað um heima og geima.
Forvitnilegar sundlaugar Útlendum gestum þykja sundlaug-
arnar forvitnilegar enda eru þeir flestir kynntir fyrir þeim fyrr en
seinna. Sundlaugaferðir eru líka það sem flestum er minnisstæð-
ast eftir komu hingað og gjarnan mikið um þær talað þegar heim
er komið. Enda óvíða sem hægt er að fara þar sem vatnið er heitt,
engin skömmtun á sturtuvatni, sápan ókeypis og aðgangur að
öllu saman bara brot af því sem það kostar víða erlendis.
í stuttu máli sagt - sundlaugar eru frábærar! 33
79