Frjáls verslun - 01.05.2002, Blaðsíða 82
Jón Pálsson, framkvœmdastjóri Tetra íslands. Mynd: Geir Ólafsson
flutningsaðilum, verktökum, orkufyrirtækjum o.fl. Ekkert er þvi
til fyrirtöðu fyrir frístundanotendur að nýta sér Tetra fjarskipti í
dag og njóta þannig gæðanna af ört vaxandi langdrægu Jjar-
skiptakerfi, með ýmsa spennandi viðbótareiginleika.
Þjónustusvæðið Víkkað Út Nú þegar er útbreiðsla Tetra á
Islandi orðin mun meiri en GSM. A SV-horninu er þéttleiki
Tetra kerfisins mjög góður, enda reiða lögregla, slökkvilið og
aðrir neyðaraðilar sig algerlega á það þar. Stefnt er að því að
víkka út þjónustusvæði fyrir neyðaraðila í tveim áföngum á
næstu 2-3 árum, þannig að allt landið og grunnsævið verði
dekkað af Tetra kerfinu. Þegar því markmiði er náð geta
ferðamenn notið þess að vera í öruggum flarskiptum um
landið allt og jafnframt haft beinan aðgang að hjálp í neyð, þar
sem neyðarlína, lögregla og björgunarsveitir þurfa ekki að
vera lengra í burtu en hnappurinn á Tetra símanum.
Frístundanotendur Tetra Upphaflega var Tetra-ljarskiptakerfið
hannað með þarfir viðbragðsaðila í huga, þar sem kröfur um
traust fjarskipti eru lykilatriði. Reynslan hefur síðan sýnt að eigin-
leikar Tetra sem öryggis- og Ijarskiptakerfis skapa tækifæri fyrir
fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga til betri Jjarskipta. Þar sem
Tetra-kerfið mun verða mjög útbreitt munu eiginleikar þess ekki
síst njóta sín fyrir írístundanotendur.
Oft ferðast menn saman í hópum, t.d. veiðifélagar, golffélagar,
gönguhópar, jeppaklúbbar og aðrir. Margir ferðamenn þekkja það
hve gott getur verið að vera í talstöðvarsambandi við hópinn á
Nýja langdræga farsímakerfið
Tetra er stafrænt farsíma- og talstöövarkerfi
sem sameinar kosti útbreiðslu NMT-kerfisins
oggæða GSM-kerfanna.
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Olafsson
eir sem ferðast um landið hafa um árabil notið góðs af
NMT-farsímakerfinu sem hefur haft mjög góða útbreiðslu
um allt land, bæði byggð og óbyggð ból, auk grunn-
sævisins umhverfis landið. Þótt talgæði og öryggi kerfisins sé
ekki jafngott og í GSM, hefur kerfið engu að síður þjónað sínum
tilgangi vegna langdrægninnar, sem aldrei verður jafngóð í
GSM. Um það verður því vart deilt að NMT-kerfið hefur veitt
bæði öryggi og þægindi fyrir þá sem ferðast um landið. Það
hlýtur því að vera áhyggjuefni fyrir ferðamenn að NMT-tæknin
sé ört að líða undir lok.
Fjölbreytt notkun Á síðustu árum hefur ný tækni, Tetra, verið
að ryðja sér til rúms í fjarskiptum og eins og oft áður hafa íslend-
ingar tekið vel við sér. Með Tetra-tækninni hefur tekist að sam-
eina í eitt stafrænt Ijarskiptakerfi langdrægan síma, stafrænan
síma, talstöð og þráðlausa gagnaflutningsleið. Tetra ísland hefur
á síðustu árum byggt upp og rekið Tetra-tjarskiptakerfið sem fer
ört vaxandi í útbreiðslu og notkun og á án vafa eftir að gagnast
ferðafólki, veiðimönnum, útivistarfólki og sjófarendum um
ókomna tíð. Kerfið er í dag notað af lögreglu, slökkviliði og
öðrum neyðaraðilum, björgunarsveitum, ferðaþjónustuaðilum,
meðan á ferðinni stendur. Tetra-notendur geta fengið sínar eigin
talrásir í Tetra-kerfinu og verið þannig í talstöðvarsambandi við
ferðafélagana á meðan á ferð stendur. Eins og í NMT-kerfinu er
Tetra-bílsími mun öflugari en handsími, og þvt liklegri til að vera í
sambandi við kerfið. Hins vegar hefur Tetra skemmtilegan kost
sem er bein talstöðvarrás. Þannig geta menn verið í Tetra-
talstöðvarsambandi sín á milli eins og í hefðbundnum talstöðvum,
þótt Tetra-kerfisins njóti ekki við. Það eru þvi í raun engin land-
træðileg takmörk fyrir þvi hvar veiðifélagarnir, golffélagarnir eða
gönguhópurinn geta verið í Tetra-sambandi sín á milli. Og um leið
og menn eru kornnir aftur í Tetra-samband þá geta menn hringt
heim og sagt veiðisöguna.
Hvað kosta herletjheilin? Tetra-fjarskiptakerfi, sem nær yfir allt
ísland, er mjög mikil tjárfesting. Það hjálpar hins vegar mikið til
að hægt er að hafa öfl fjarskipti óiikra aðila eins og lögreglu, flutn-
ingsaðila, sjómanna og einkaaðila í einu og sama kerfinu. Áskrift
að Tetra-kerfinu kostar álika mikið og áskrift að NMT En fyrir
það fá menn miklu meira. Tetra-símar eru enn sem komið er
nokkuð dýrir ef borið er saman við GSM-sima og munu alltaf
verða mun dýrari. Sé samanburðurinn hins vegar við NMT-
bílsíma og talstöð, eins og margir ferðamenn hafa í bílum sínum,
þá er Tetra-sími vel samkeppnishæfur í verði. Starfsfólk Tetra
Islands er mjög stolt af því að íslenskir neyðaraðilar, sem treyst er
fyrir öryggi, lifi og limum fólks á örlagastundu, skuli treysta því
fyrir Ijarskiptum sínum og er sannfært um að um ókomna framtíð
geti ferðamenn og frístundafólk ekki síður treyst á Tetra-flarskipti.
Eða eins og sagt er: Tetra er betra - til lengdar! SD
82