Frjáls verslun - 01.05.2002, Page 88
Fjörkálfurinn
Selur reiðhjól og sláttuvélar
Fyrirtækið Hvellur.com er til húsa við
Smiðjuveg 8 í Kópavogi og stýrir þar
starfseminni Jóhannes Valdemars-
son framkvæmdastjóri, sem jafnframt er
eigandi fyrirtækisins. Hvellur.com er
með árstíðabundna starfsemi. Frá vori til
hausts er fyrirtækið í innflutningi og sölu
á reiðhjólum og aukahlutum á reiðhjól
auk þess að vera í viðgerðum og þjónustu
við reiðhjólaeigendur. hjónusta og gott
viðmót er í fyrirrúmi. Enginn kemur að
tómum kofanum eða þarf að snúa til baka
með hjólið sitt án þess að fá lausn sinna
mála, viðskiptavininum er alltaf sinnt og
málið leyst. „Við aðgreinum okkur frá hinum reiðhjólaversl-
ununum með þjónustulund og með því að halda þekkingu og
reynslu inni í fyrirtækinu. Við leysum öll vandamál reiðhjólaeig-
andans. Fólk þarf ekki að leita annað,“ segir Jóhannes.
Islensk hjól Vörulina fyrirtækisins er mjög breið og getur við-
Hvellur selur reiðhjól, sláttu-
vélar og sláttuorf snjókeðjur og
veitir viðhald ogþjónustu.
Jóhannes Valdemarsson fram-
kvæmdastjóri hefur einnig lagt
sitt afmörkum í forvarnarstarfi
gegn þjófnuðum.
Eför Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Mynd: Geir Ólafsson
Framleiðir snjókeðjur Á veturna færist
starfsemi fyrirtækisins meira yfir í
framleiðslu og sölu á snjókeðjum.
Hvellur.com kaupir inn hráefriið og svo
eru snjókeðjurnar framleiddar. Margur
myndi halda að eftirspurn eftir snjó-
keðjum hefði snarminnkað með bættum
samgöngum en svo er ekki raunin. Stórir
flutningabílar og vinnuvélar þurfa að
bijótast í gegnum skaflana þó að aðrir
komist það ekki. Snjókeðjurnar hjá Hvelli
henta mjög vel fyrir stórar vinnuvélar,
hvort heldur það eru möskvakeðjur eða
hefðbundnar þverbandakeðjur undir t.d.
vörubíla, veghefla og stórvirk jarðvinnslutæki en líka er hægt að
fá snjókeðjur fyrir fólksbíla.
„Eg hef stundum sagt að gamni mlnu að við eigum snjókeðjur
undir allt sem hefur hjól nema flugvélar. Þó að sárafáir fólksbílar
noti snjókeðjur í dag þá er það alltaf einn og einn ökumaður sem
vill hafa keðjurnar í skottinu," segir Jóhannes. S3
skiptavinurinn fengið allt frá ódýrum hjólum í viðun-
andi gæðaflokki upp í eitt dýrasta hjól á Islandi sem
auðvitað er í hæsta gæðaflokki. Það kostar um 411
þúsund krónur. Trekking Fox reiðhjólin eru flagg-
skip fyrirtækisins en þau eru mjög traust og vönduð
auk þess sem Hvellur.com er með eigin vörumerki,
Icefox reiðhjólin sem eru sérstaklega framleidd fyrir
íslenskar aðstæður af sama framleiðanda og Trekk-
ing Fox hjólin.
„Við ákveðum hvað er í hjólunum, allt frá aðalat-
riðum niður í smæstu smáatriði. Við komum næst því
að framleiða hjólin sjáltir, eina sem stendur í vegi fyrir
því að hjólin geti kallast íslensk framleiðsla er að við
eigum ekki verksmiðjuna, sem framleiðir þau,“ segir
Jóhannes.
Jóhannes Valdemarsson, framkvœmdastjóri og eigandi Hvells ehf, meb eitt afreid-
hjólunum sem jýrirtœkið selur.
Einkennisnúmerió er skráð „Á sumrin ffytur
Hvellur.com einnig inn og selur sláttuvélar frá
Murray og vél- eða sláttuorf frá Echo ásamt því að
sinna viðgerðum og viðhaldsþjónustu við sláttuvélar,
Murray eða eitthvað annað. Sérhætingin nær þó ein-
göngu til Murray véla með Briggs og Stratton
mótora - en auðvitað gerum við einnig við aðrar
vélar, hvað svo sem þær heita. Hvellur.com flytur
einnig inn varahluti í þessar vélar og selur þjónustu-
aðilum um allt land.“
Jóhannes er brautryðjandi í forvarnastaríi gegn
þjófnuðum með kynningu sinni á starfsemi Crime on
line á Netinu og hefur tekist ásamt Crime on line að
byggja upp samstarf við lögreglu, tryggingafélög og
almenning. Með því að skrá inn einkennisnúmer
hluta, td. reiðhjóls, í gagnagrunn Crime on Une er
hægt að auka verulega líkurnar á að þjófnaður á t.d.
reiðhjóli eða sláttuvél komist upp eða að hluturinn
komi í leitirnar.