Frjáls verslun - 01.05.2002, Blaðsíða 93
Léttvín njóta sífellt meiri vinsælda á íslandi. Ef til
vill er ekki hægt að tala um nein sérstök sumar-
vín. Þó er það ljóst að sumarið og haustin eru
tími léttvína skv. tölum frá ATVR. Þau vín sem við
tjöllum hér um eiga það sameiginlegt vera öll í
háum gæðaflokki og koma frá heimsfrægum fram-
leiðendum. Þau eru nú öll fáanleg í sérverslunum
ÁTVR, þ.e.a.s. Heiðrúnu og Kringlunni. ffl
Chile
Escudo Rojo 1999
Baron Philippe de Rothschild
Maipo Chile 13,5%
Escudo Rojo er vínið sem sannar
hvað frábær ræktunarskilyrði í
Maipodalnum í Chile og þekking
hins frábæra Bordeauxframleið-
anda Baron Philippe geta skilað.
Vínið er að klassískum hætti
blanda af þremur þrúgutegundum
sem allar koma upprunalega frá
Bordeaux til Chile. Þetta eru
Cabernet Sauvignon, Carmenére
og Cabernet Franc, sem hér
blandast saman af mikilli þekk-
ingu og mynda frábært vin með
miklum þungum ávexti í góðu
jafnvægi milli allra þátta. S3
Frakkland
Le Petit Mouton 1998
Pauillac Bordeaux Baron
Philippe de Rothschild 12,5%
Nafn vínsins útleggst „litli
Mouton”, eða nánar tiltekið
„litli Chateau Mouton Rothschild”.
Flestir frægustu búgarðar Bord-
eaux framleiða aðal- og aukavín.
Le Petit Mouton er aukavín
Chateau Mouton Rothschild sem
er einn af fimm virtustu bú-
görðum Bordeaux. Þetta vín er
framleitt í þeim hluta víngarðsins
sem yngri vínviðarplönturnar
vaxa. Þetta orsakar örlitið léttara
vin en aðalvínið. Engu að síður er
þetta frábært eintak af klassískri
blöndu Cabernet Sauvignon,
Merlot og Cabernet Franc í klass-
ískum Bordeaux stil með miklu
bragði og flóknum ilmi. Bli
Ítalía
Castello Banfi Brunello di
Montalcino 1996
Banfi Toscana 13%
Brunello di Montalcino er eitt af
þekktustu og virtustu rauð-
vínum Ítalíu. Þessi Brunello er öfl-
ugur og framleiddur af einum
stærsta og tæknivæddasta fram-
leiðanda Toscanahéraðs, Castello
Banfi. Vinið er þrungið bragði og
ilmi af þungum sólrikum ávexti.
Hér er á ferðinni eitt af stóru nöfn-
unum í ítalskri víngerð, eitt af
úrvals rauðvínum Itala sem stenst
fyllilega samanburð við það besta
frá öðrum löndum. SIi
tíCOLTt DU DOUAIM
Musigny
GRAND CRU
Frakkland
Joseph Drouhin Musigny
Grand Cru 1994
Búrgund Cote de Nuits 13%
Joseph Drouhin Musigny
Grand Cru er ekkert annað en
sönnun á því hvað hægt er að gera
frábær og fáguð rauðvín úr þrúg-
unni Pinot Noir. Musigny er eitt af
þessum eftirsóttu stórvínum
Búrgundar. Sú staðreynd og svo
þessi virti framleiðandi skila hér
aldeilis frábæru rauðvíni sem
unun er að hnusa af og drekka. SD
93