Frjáls verslun - 01.05.2002, Side 95
LUNDÚNAPISTILL SIGRÚNflR DflVÍÐSDÓTTUR
sem slíkur. Eriksson hefur alltaf þakkað Grip það sem hann kann
í þjálfun. Það sérstaka við þetta samband er að Grip er tíu árum
eldri en Eriksson. Eriksson lætur samstarfsmenn sína um allar
daglegar reddingar og það eru Grip og fleiri sem iðulega sþórna
æfingum. Eriksson er viðstaddur, reynir að skapa rétta andann,
grípa inn allsstaðar þar sem þarf og hafa augu á öllu. Hann er
svona yfir og allt um kring, en ekki með hendurnar á öllu.
Duglegur að hrósa „Mér finnst að þú ættir að taka þér Eriksson
tíl fyrirmyndar, mamma,“ sagði sextánáringurinn í fjölskyldunni
nýlega. „Hann er víst mjög duglegur að hrósa mönnum fyrir það
sem þeir gera vel.“ Þetta hafði hann heyrt í umfiöllun um bókina
hér. Eg skammaðist mín niður í tær. Eg hafði
nefiiilega komið inn í eldhúsið, tekið eftir að
sextánáringurinn hafði óumbeðið tekið úr
uppþvottavélinni og svo hafði ég gleymt að
hafa orð á þessu frábæra fram-
taki hans. En þarna hittir Eriks-
son nákvæmlega naglann á höf-
uðið: það eru frábærir eiginleik-
ar stjórnenda að vera duglegir að
nefna það sem vel er gert.
Fyrir nokkrum árum hittí ég
hóp af íslensku fiskverkunar-
fólki, sem hafði sest að í Han-
stholm á Jótlandi. Það var at-
hyglisvert hvað margir
nefndu, án þess að vita að hinir
nefndu þetta líka, að þegar þeir
hefðu farið að vinna á dönskum
vinnustað hefðu þeir í fyrsta skipti
kynnst því að vera hrósað fyrir vinnu
sína. Hugsið ykkur! Skildi þetta
vera ríkjandi á íslenskum vinnu-
stöðum? Hugleiðið nú þetta:
Hvenær hrósuðuð þið einhverj-
um fyrir velunnin störf? Eruð þið
duglegri við að nudda í því sem
hefur aflaga farið?
En við þurfum nú kannski ekk-
ert á bókinni um Eriksson að halda. Einn
þeirra sfiórnunarfræðinga sem vitnað er tíl í
bókinni segist hafa mikið yndi af keltneskum
og norrænum bókmenntum. Leiðtogamynd
þeirra einkennist af skilningi á gildi gagn-
kvæmrar hollustu, ekki bara
milli stríðsmanna og leiðtoga
þeirra, heldur hollustu leiðtog-
ans við stríðsmennina. Leiðtog-
inn leit á það sem eðlilegan hlut
að setja gott fordæmi - vitíð þið
að Ingvar Kamprad, stofiiandi
Ikea, fer enn með strætó ef hann
getur og yfirmenn Ikea fljúga
aldrei á fyrsta farrými? A sama hátt var undirsátinn hollur yfir-
manninum og svik við yfirmanninn var það versta sem til var.
Mikið rétt. Allt þetta um hollustu og virðingu og skilning á
gagnkvæmu mikilvægi yfir- og undirmanna má finna í íslend-
ingasögunum. Bætið svo við þessu með bros og uppörvun,
gleymið ekki að vera þið sjálf og gerið ykkar besta. Þá eruð þið
langt komin í nútíma stjórnunartísku. Hvort þið vinnið er annað
mál - við getum ekki öll verið heimsmeistarar - en þið verðið þá
vonandi sátt við ykkur sjálf og aðra. Það verður Eriksson örugg-
lega hvort sem hann sparkar nú Englendingum upp á heims-
meistaratoppinn eða ekki. 311
Leiðarljós Erikssons
Slítið ykkur frá fortíðinni . Takið hvert nýtt verkefni
sem nýtt upphaf: nýtt tækifæri til að standa sig vel - eða nýtt
tækifæri til að gera betur. Ef þið eruð að taka við nýju starfi þá
haldið ykkur sem lengst frá valdabaráttu og valda-
brölti, sem kann að hafa farið þar ffam, og frá öllum
valdaklíkum.
Kynnið ykkur aðstæður. Eriksson byrjaði
auðvitað á að fara á alla enska fótboltaleiki, sem hann
komst yfir. Það er sagt hann hafi náð 22 leikjum á sex
vikum. Þið þurfið þess kannski ekki, en kynnið ykkur
aðstæður eftír því sem við á í hveiju tilfelli.
Skilgreinið hvar vandinn liggur. Af ein
hveijum ástæðum vantaði enska landsliðið örfættan
fótboltamann. Enginn af þeim góðu skaut með
vinstri fætinum. Eriksson leitaði og fann á end-
anum óþekktan örfættan fótboltamann. Af
þessu má læra að ef lausnin finnst ekki þar
sem búast má við henni verður að leita víðar.
Undirstrikið þetta jákvæða.
Eriksson er óstöðvandi jákvæður. Hann trúir á
möguleikana, en einblínir ekki á það sem er kannski
ekki hægt.
Byrjið strax á að vinna og byggið á því.
Þessi fyrsti vinningur þarf ekki að vera stór. Finnið
bara eitthvað, sama hversu smátt, sem hefur heppnast
og reynið að halda áfram á þeirri braut.H!]
fluk þess að hafa til að bera þessa hæfileika til að ná til samstarfsmanna sinna
hefur hann líka skilning á að halda vissri fjarlægð. Hann er vinalegur, en hann reynir
ekki að vera félagi strákanna.
95