Frjáls verslun - 01.05.2002, Page 96
Systurnar Ingibjörg og Guðrún Guðmundsdætur
reka Prentsmiðju Hafnarjjarðar þar sem prentun
og bókband hefur verið stundað í hartnær sextiu
ár. Prentsmiðjan hefur alla tíð verið í sama hús-
inu í Hafnarfirði og nú stýra þær systur fyrirtæk-
im, í sama húsi ogþær ólust upp í sjálfar; á
tímum öldugangs i prentgeiranum.
Eftir Guðnínu Helgu Sigurðardóttur Mynd: Geir Ólafsson
Við tókum við rekstri prentsmiðjunnar þegar við vorum
komnar á fimmtugsaldur og það var lægð í þjóðfélaginu.
Þetta er harður heimur, eins og sést á öllum þeim samein-
ingum sem hafa átt sér stað í prentgeiranum að undanförnu.
Fyrirtækjunum hefur fækkað. A síðustu árum hefur verið
offjárfest í greininni og gífurlegt undirboð á sér stað. Markað-
urinn er þröngur en okkar styrkur eru okkar föstu viðskipta-
vinir sem við höfum þjónað árum saman, bæði stórum og
smáum fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum. Fyrirtækið
hefur átt farsæla sögu og góðan orðstí. Þó að það hafi gengið
upp og niður hjá þessu fyrirtæki eins og öðrum þá hefur Prent-
smiðja Hafnarijarðar alltaf getað unnið sig út úr erfiðleik-
unum,“ segja systurnar Guðrún og Ingibjörg Guðmundsdætur,
framkvæmdastjórar Prentsmiðju Hafnarijarðar.
Bera jafna ábyryö Hlutafélag um stofnun og rekstur Prent-
smiðju Hafnarijarðar var stofnað árið 1945 af Guðmundi
Ragnari Jósefssyni, setjara og prentara, ásamt fleirum. Fyrstu
skrefin voru að safna hlutafé, reisa hús utan um starfsemina og
kaupa vélar frá Ameríku áður en starfsemin hófst, eins og tíðk-
aðist í þá daga. Sigurður Guðmundsson arkitekt, móðurbróðir
Guðmundar Ragnars, var einn af hluthöfunum. Hann teiknaði
húsnæði undir prentsmiðjuna við Suðurgötu í Hafnarfirði og
segja systurnar að það sé sennilega iyrsta iðnaðarhúsið þar í
bæ sem hannað er af arkitekt. Starfsemi Prentsmiðjunnar
hófst árið 1946. Guðmundur rak það til dauðadags 1962, þá fer-
tugur að aldri.
Eftir andlát Guðmundar tók eiginkona hans, Steinunn Guð-
96