Frjáls verslun - 01.05.2002, Page 97
mundsdóttir, við rekstrinum og fékk hún bróður sinn, Árna
Guðmundsson, til liðs við sig. Hann sá um daglegan rekstur
prentsmiðjunnar þar til hann lét af störfum 1996 fyrir aldurs
sakir. Steinunn hafði þá dregið sig í hlé frá daglegri starfsemi
og Guðrún og Ingibjörg tóku við rekstrinum. Prentsmiðja
Hafnarijarðar er nú í eigu ekkju Guðmundar og barna ásamt
föðursystur þeirra. Systurnar sjá sameiginlega um reksturinn
og bera jafna ábyrgð en í verkaskiptingu sér Guðrún um bók-
hald og launaútreikninga og Ingibjörg um verkútreikninga. Að
öðru leyti ganga þær jafnt tíl starfa við framleiðsluna.
Bylting með Offsetinu „Við höfðum alltaf unnið hérna frá 10
ára aldri en aldrei komið nálægt rekstrinum. Á árunum 1975-
1980 varð bylting, blýið datt út og offsetið kom inn. Þessi bylt-
ing varð nánast á einni nóttu. Setjararnir komust í uppnám,
þeir urðu að setjast við tölvurnar eða hætta. Bróðir okkar, Guð-
mundur Magnús, er lærður setjari og hann vann hér meðan
þessi byltíng var að ganga yfir. Við höfðum báðar verið í Versl-
unarskólanum svo að við kunnum að vélrita og áttum því auð-
velt með að setjast við tölvurnar," segja þær.
Ingibjörg er lærður bókbindari og Guðrún vann árum saman
við tölvusetninguna. Fljótlega eftír að þær tóku við rekstri fyrir-
tækisins réðust þær í að endurnýja tölvukost og tæki til filmuút-
keyrslu, ásamt því að kaupa nýja tveggja lita prentvél. Þegar
gengið er um fyrirtækið má víða sjá ýmsar gamlar vélar, sem að
vísu eru ekki í daglegri notkun en hægt er að grípa tíl eftír
Offjárfestingin háir ekki Prentsmiðju Hafnar-
fjarðar þessa dagana. Tækjakosturinn er
þokkalegur en alltaf er þörf fyrir endur-
nýjun. Fyrirtækið hefur verið að velta fyrir
sér kaupum á fjögurra lita prentvél en á
þeim markaði er offjárfestingin mest.
Á árunum 1975-1980 varð bylting, blýið datt
út og offsetið kom inn. Þessi bylting varð
nánast á einni nóttu. Setjararnir komust í
uppnám, þeir urðu að setjast við tölvurnar
eða hætta.
þörfum en sumar af gömlu vélunum hafa aflað fyrirtækinu
ýmissa verkefna í dag sem aðrar og tæknivæddari prentsmiðjur
geta jafnvel ekki sinnt. Prentsmiðja Hafnartjarðar sinnir alls
konar prentun, einkum þó prentun og bókbandi á bókum, bækl-
ingum og blöðum og hvers kyns eyðublöðum. íjónustan er
mjög persónuleg og sveigjanleg og geta t.d. rithöfundar og ein-
yrkjar komið inn á gólf og fylgt framleiðslunni vel eftir.
Dýli að flytja Prentsmiðja Hafnartjarðar var 20 manna vinnu-
staður þegar mest lét en nú eru starfsmennirnir aðeins fimm
og voru sex fyrir síðustu jól. „Við erum með frábært fagfólk í
hverri stöðu og í því liggur styrkur okkar. Við tökum að okkur
alla almenna prentun, höfum bókband innan veggja fyrirtækis-
ins og getum þar af leiðandi unnið bók frá handriti tíl fullunn-
innar bókar sem er ekki algengt í litlum prentsmiðjum í dag.
Við erum vel samkeppnishæf við stóru smiðjurnar í litlum upp-
lögum. Hér er bókunum klappað oft og það fer engin bók úr
húsi án þess að það sé búið að fletta henni fram og til baka og
tryggja að hún sé í fullkomnu lagi,“ segja systurnar.
Velta Prentsmiðju Hafnartjarðar var um 30 milljónir króna
á síðasta ári. Systurnar tóku við erfiðu búi og hafa verið að
rétta við reksturinn á síðustu árum. Undanfarið hafa þær verið
að greiða niður þá Jjárfestingu sem þær fóru í þegar þær tóku
við. Þær segja að árið lofi góðu og kvíða ekki framtíðinni þó að
hart sé í ári hjá mörgum prentsmiðjum. „Við erum svo
heppnar að eiga þetta hús. Menn hafa sagt við okkur að við
gætum fengið einhverjar milljónir á milli með því að flytja
fyrirtækið í annað iðnaðarhúsnæði en við nennum því ekki og
svo er ofboðslega dýrt að flytja svona fyrirtæki. Það yrði
menningarslys ef fyrirtækið færi úr þessu húsi. Aðstaðan hér
háir okkur ekki,“ segja þær.
Engin Offjárfesting OfJjárfestingin háir ekki Prentsmiðju
HafnarJjarðar þessa dagana. Tækjakosturinn er þokkalegur en
alltaf er þörf fyrir endurnýjun. Fyrirtækið hefur verið að velta
fyrir sér kaupum á Jjögurra lita prentvél en á þeim markaði er
ofJjárfestingin mest. ,Á undanförnum misserum hefur orðið
mikil aukning í bókaprentun hjá okkur og virðist sem sóknar-
færin liggi þar og liggur því ákvörðun um hvernig og hvenær
verður ráðist í vélarkaupin ekki Jyrir,“ segja þær að lokum. SLj
97