Frjáls verslun - 01.05.2002, Síða 101
Á hlaup.is er hœgt að lesa Jréttir, skoða hlaupadagskrá
ársins og kynna sér úrslit hlauþa, fá uþplýsingar um
skokkhópa, œfingaáætlun, lesa sögur úr hlauþum, leggja
í púkkið á umræðuvettvangi og svo mœtti lengi telja.
Hægt er að skrá sig t hlaup og kaupa ýmislegt sem þarftil
hlauþa, t.d. skó, púlsmœla og fatnað.
Hlaupin á Netinu
Omissandi þáttur í lífi hvers hlaupara
og skokkáhugamanns ættu að vera
reglulegar heimsóknir, eða svo gott
sem, inn á hlaupasíðuna hlaup.is sem
haldið hefur verið úti af þijósku og
myndarbrag um nokkurra ára skeið.
Hlaupasíðan er ekki einasta flölmiðill
með öllum helstu upplýsingum um
hlaupadagskrá ársins og úrslitum hlaupa
heldur gefur hún líka ýmsar nytsamlegar
upplýsingar fyrir byijendur og lengra
komna um skokkhópa, æfingar og
æfingaáætlanir, almennar eða sérút-
búnar, hlaup og hlaupaleiðir auk þess
sem hægt er að kynna sér reynslu manna úr fyrri hlaupum,
leggja í púkkið á umræðuvettvangi, lesa skemmtisögur, skoða
myndir, fá ráð reyndra manna og svör við spurningum og skoða
ýmsan fróðleik. En stóri kosturinn við hlaupasíðuna er óneitan-
lega hlaupadagskráin, umræður um hlaup og úrslit hlaupa.
Skráning í hlaup Hlaup.is gefur notendum kost á að skrá sig
í hlaupin sem óneitanlega er til mikilla þæginda og getur flýtt
íýrir þegar menn geta ekki mætt í rásmarkið fyrr en á síðustu
stundu en því miður eru engar leiðbeiningar gefnar um það,
ekki enn að minnsta kosti, hvernig eigi að skrá sig úr hlaupi ef
menn veikjast á síðustu stundu. Þetta er ákveðinn galli á kerfinu
því að sumir hlauparar stefna mjög markvisst á ákveðin hlaup og
skrá sig snemma, detta svo kannski úr lestinni rétt fyrir hlaup
vegna t.d. meiðsla eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna. Auð-
vitað má það kannski ekki vera auðvelt þvi að þá er hætta á að
menn fari að skrá sig í og úr hlaupum fram og til baka, þetta er
þó þjónusta sem þarf að vera fyrir hendi. Reyndar má taka fram
að þegar sendur er tölvupóstur til aðstandenda vefsvæðisins eru
þeir fljótir að bregðast vel við. A hlaup.is er einnig hægt að skrá
sig á póstlista og kaupa ýmsar ágætar nauðsynjavörur fyrir
hlauparann.
A sama hátt og Golf.is erstór þáttur í
lífi kylfingsins er hlaupasídan hlaup.is
nauósynlegt hjálpartæki hvers einasta
/
skokkáhugamanns. A sídunni kennir
margra grasa, bœði fróðleiks og
skemmtunar auk pess sem hægt er að
kaupa ýmsar hlaupavörur.
Efitir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Upplýsingabrunnur Hlaup.is er í heildina
séð afar þægilegur og þjónustulundaður
vefur þó að ekki sé hann neitt fallegur
fyrir augað. Hann er góður til síns brúks
og það skiptir mestu að sjaldan er komið
að tómum kofanum. Það hefur þó því
miður gerst. I ársbyijun þurftu óþolin-
móðir hlauparar til dæmis að bíða
nokkuð eftir hlaupaáætlun fyrir árið,
hvaða ástæður svo sem lágu þar að baki -
kannski var hlaupaáætlunin hreinlega
ekki tilbúin úr hendi skipuleggjenda.
Einnig var misbrestur, að minnsta kosti
um tíma í fyrra, á því að úrslit hlaupa
væru komin nægilega fljótt inn á vefinn. Sitthvað af þessu taginu
mætti tína tál. Mestu skiptir þó að hlaupasíðunni er haldið úti af
þijósku, metnaði og áhuga og hún er frábær þjónusta og upplýs-
ingabrunnur fyrir áhugamenn um hlaup. BD
Hellsuhlaupiö 2002
Sveittir og þreyttir í marki. Myndirnar standa 100% fyrir sínu.
VIÐSKIPTI ■ TÖLVUR • FERÐALÖG ■ VÍN - WWW.HEIMUR.IS
101