Frjáls verslun - 01.05.2002, Síða 106
Elísabet Sveinsdóttir, markaðsstjóri á einstaklingsmarkaði hjá Islandsbanka. „Hér er tekið vel í góðar hug-
myndir og frumkvæði og kraftur eru vel metin gildi í Islandsbanka. Eg held að það sé óvenjulegt hve auð-
velt er að vinna málunum brautargengi í fyrirtœki afþessari stærðargráðu. “ Mynd: Geir Ólafsson
FÓLKSVIÐTAL
staður og hér er valinn maður
í hveiju rúmi,“ segir hún.
Elísabet er 38 ára gömul,
Keflvíkingur að uppruna.
Hún er gift Aðalsteini Jóns-
syni, íþróttafræðingi og sölu-
stjóra Álforms, og eiga þau
tvo stráka; Arnór Svein, 16
ára, og Bjarka, 10 ára. Elísa-
bet á von á þriðja barninu í
ágúst. Hún er mikill áhuga-
maður um íþróttir og fyrrum
leikmaður í körfubolta og
handbolta með Keflavík og
Njarðvík. Hún lék körfubolta
með bandarísku háskólaliði á
sínum tíma og handbolta með
þýskum liðum. Hún grípur
alltaf öðru hveiju í körfubolt-
ann með strákunum sínum og
vinnufélögum. „Bæði Aðal-
steinn og strákarnir mínir eru
á kafi í íþróttum og ég fylgi
óneitanlega með. Við flutt-
umst til Þýskalands á sínum
tíma þegar Aðalsteini var boð-
ið að spila sem atvinnumaður
í handbolta og bjuggum þá
Elísabet Svelnsdóttir, Islandsbanka
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
JT
Eg vinn að markaðsmálum
einstaklinga hjá íslands-
banka, en þau tilheyra
miðlægu sviði sem skiptist í
markaðsmál, kynningarmál
og greiningu. Starfssvið mitt
er afskaplega fjölbreytt en í
stuttu máli er það almenn
stjórn og samræming mark-
aðsmála einstaklinga sem
getur þýtt allt frá hugmynda-
vinnu, stefiiumótun og áætl-
anagerð til alls kyns smá-
atriða sem koma upp daglega
og þurfa að vinnast strax. Það
má segja að allt mitt starf mið-
ist við að markaðssetja vöru
og þjónustu fyrir einstaklinga
á útibúasviði. Við reynum að
fylgjast með markaðinum og
rýnum í niðurstöður kannana
og sjáum þar hveijar þarfir
viðskiptavinanna eru og
hvaða þjónustu þeir kalla á hjá
okkur. I útibúum okkar
stöndum við fyrir þjónustu- og
106
söluátökum reglulega og um
þessar mundir erum við t.d.
að auglýsa sumarátakið okkar
undir yfirskriftinni: Vertu
með allt á hreinu í sumar! Þar
bendum við viðskiptavinum
okkar á nokkrar leiðir til að
eiga áhyggjulaust sumar - og
láta íslandsbanka sjá um fiár-
málin, t.d. með greiðsluþjón-
ustunni okkar. Við erum í
góðu sambandi við útibúin og
starfsmennirnir þar láta
okkur vita hvað það er sem
fólk hefur áhuga á,“ segir
Elísabet Sveinsdóttir, mark-
aðsstjóri hjá Islandsbanka.
Elísabet hefur nú unnið
hjá íslandsbanka í tvö ár en
áður hafði hún vakið athygli
manna sem fréttamaður hjá
Ríkissjónvarpinu í eitt ár. A
undan því starfaði hún sem
starfsmannastjóri hjá Vífilfelli.
Eftir stúdentspróf lærði hún
markaðsfræði í Bandaríkjun-
um og bjó svo með fjölskyld-
unni í Þýskalandi í tæp fimm
ár við nám, leik og störf. Eftir
að fjölskyldan fluttíst heim fór
Elísabet í hagnýta ijölmiðlun
við Háskóla íslands árið 1998.
„Þá bauðst mér að prófa
fréttamennskuna og var sá
tími bæði skemmtilegur og
gaf mér dýrmæta reynslu. Eg
ákvað nú samt að söðla um og
kom hingað í markaðsmálin
fyrir rúmum tveimur árum og
hef sjaldan verið eins ánægð í
starfi. Þetta er svo ijölbreytt
og lifandi. Þó að ég hafi líka
kunnað vel við mig í frétta-
mannsstarfinu þar sem
maður er með fingurinn á
þjóðlífspúlsinum þá er ég það
ekkert síður nú. Hér er tekið
sérstaklega vel i góðar hug-
myndir og frumkvæði og
kraftur eru vel metin gildi í
Islandsbanka. Eg held líka að
það sé fremur óvenjulegt hve
auðvelt er að vinna málunum
brautargengi í fyrirtæki af
þessari stærðargráðu.
Islandsbanki er úrvals vinnu-
stutt frá Freiburg í Svarta-
skógi, ekki langt frá landa-
mærum Sviss og Frakklands.
Þar eignuðumst við marga
vini sem við höldum góðu
sambandi við. Þýskaland er
og verður alltaf í uppáhaldi
hjá mér.“
Hvað önnur áhugamál
varðar þá má nefna að elda
góðan mat og ferðalög. Stór
hluti ijölskyldu Elísabetar býr
í Bandaríkjunum og því er
hún með annan fótinn þar.
„Móðir min fluttist þangað
þegar faðir minn lést fyrir
tæplega 18 árum. Yngri
bróðir minn starfar hjá
bandarísku flugfélagi en
konan hans hjá Samskipum í
Norfolk. Það er því lágmark
að skella sér út einu sinni til
tvisvar á ári til að viðhalda
fjölskyldutengslunum. Svo á
ég annan bróður í Keflavík
svo að ég heimsæki líka
gamlar heimaslóðir reglu-
lega.“ 33