Morgunn - 01.12.1986, Blaðsíða 25
fóru ekki eftir afstöðu manna til stjórnarinnar, og Björn
Jónsson beindi því til heimastjórnarmanna, að þeir fengju
sér sjálfir miðla og prófuðu þá.
Þeir geta alveg eins leitað sér uppi miðil eins og vér
höfum gert; því nóg er um þá. Þeir eru til einn og tveir
og þrír á heimili hingað og þangað, bæði innan bæjar
og utan, þeir er vér vitum um; og þá auðvitað margir,
sem vér vitum alls ekki af.25
Ekki er vafi á því, að margir þeirra hafa fylgt þessu ráði
og sannfærst um fyrirbrigðin. Á öðrum áratug aldarinnar
ber ekki á neinum tilraunum til þess að tengja málið stjórn-
málum, og blaðadeilum um það lýkur að mestu. Einna helst
mætti í þessu sambandi nefna grein Gísla Sveinssonar og
Ágústs H. Bjarnasonar, sem birtust í Lögréttu og fleiri
blöðum. Voru þeir báðir andstæðir spíritismanum, og urðu
forsvarsmenn hans til andsvara. Sá síðarnefndi efaði þó
ekki, að fyrirbi'igðin gerðust í raun og veru svikalaust, en
hann útskýrði þau á annan hátt en spíritistar og taldi þau
ekki benda til tilveru framliðinna í öðrum heimi.
Þess má geta„ að leiðtogi Heimastjórnarflokksins, Hann-
es Hafstein, sem á fyrsta áratugi aldarinnar hafði sjálfur
leitt málið hjá sér, snerist á sveif með spíritistum og tók að
kynna sér kenningar þeirra. Hann var meðal hinna fyrstu,
sem gengu í Sálarrannsóknafélag Islands, sem stofnað var
árið 1918.-° Fornvinur hans frá Hafnarárunum og félagi
við útgáfu Verðandi árið 1882, Einar H. Kvaran, veitti hon-
um leiðsögn og útvegaði honum bækur um málið. Árið 1913
hafði Hannes misst konu sína og leitaði eftir það huggun-
ar i spíritismanum.27
Hér hefur verið rakið, hvernig upphaf spíritismans
tengdist Einari H. Kvaran og nokkrum vinum hans og sam-
herjum í stjórnmálum aldamótaáranna. Þetta er skýrasta
25. tsafold 16.6. 1906.
26. Félagatal sem birt var í Morgni I 1920.
27. Kristján Albertsson, Hannes Hafstein. Ævisaga II. Almenna bóka-
félagið, Rvik 1964, bls. 290—3000.
MORGUNN 9 9