Morgunn - 01.12.1986, Blaðsíða 21
sumarið 1906 og fram á haustið 1908, og Isafold og Fjall-
konan drógu einnig úr skrifum sínum um málið, eins og
áður hefur verið bent á. Má vera, að Blaðamannaávarpið
og aðdragandi þess hafi átt sinn þátt í að draga úr þessum
blaðaskrifum.12
Eftir að FjaUkonan varð landvarnarblað frá ársbyrjun
1907, birtist þar ekkert um spíritismann, hvorki með né
á móti. Áður hefur verið bent á, að haustið 1908 var Lög-
rétta mun harðorðari í garð spíritista en Þjóðólfur, og end-
urspeglar það þá þróun, að Lögrétta var að verða aðalmál-
gagn Heimastjórnarflokksins.
Einar var formaður Tilraunafélagsins, og Björn var í
stjórn þess. Haraldur Níelsson var einnig í stjórn og mun
hafa hallast að stjórnarandstöðunni, þó ekki væri hann til-
takanlega afskiptasamur af stjórnmálum.13 Þótt Einar væri
aldrei þingmaður, var hann einn af mestu áhrifamönnum í
íslenskum stjórnmálum um aldamótin. Þorsteinn Gíslason
telur í stjórnmálasögu sinni, að hann hafi átt mestan þátt
í að afla valtýskunni fylgis á Islandi, þótt Björn Jónsson
ætti að heita foringi hennar.14 Einar var þá þegar orðinn
einn allra vinsælasti rithöfundur landsins, og átti hróður
hans eftir að vaxa á því sviði.15 Hafa ber i huga, að ritstjór-
ar höfðu lykilstöðu í stjórnmálalífinu á Islandi á þessum
árum, og flokkamyndanir voru oft lítið annað en tíma-
bundin samtök meðal þingmanna, er tryggt höfðu sér
stuðning einhvers blaðs. Valtýr sjálfur var þó ekki spíritisti,
og kemur það fram í ritdómum hans í símariti þvi, er hann
gaf út í Kaupmannahöfn, Eimreiðinni. Þar var fjallað um
12. Á þetta hefur Helga Þórarinsdóttir einnig bent í ritgerð sinni: Upp-
haf spíritismans á Islandi, 1977, í vörslu Háskólabókasafns, bls. 30.
13. Haraldur Nielsson, Bréfakaflar. I Haraldur Níelsson. StríSsmaÍSur ei-
lífSarvissunnar 1868—1968, SRFÍ, Rvik 1968, bls. 291.
14. Þorsteinn Gíslason, Þættir úr stjórnmálasögu Islands árið 1896—1918.
1 Þorsteinn Gíslason. Skáldskapur og stjórnmál, Almenna bókafélagið,
Rvík 1966, bls. 1445.
15. Stefán Einarsson, History of lcelandic Prose Writers 1800—1940, Is-
landica XXXII.—XXXIII, Ithaca, New York 1948, bls. 94 og áfram.
MORGUNN 1 Q