Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Page 54

Morgunn - 01.12.1986, Page 54
Þetta samstillandi taugakerfi, er kerfi samtengdra og gagnnæmra tauga og er tákn sálarinnar í manninum, hið ytra og sýnilega form innri andlegs raunveruleika. 3. Líkama köllum við endanlega allt það hold, þá vöðva og þau bein sem hann ber með sér. Allt er þetta samstillt af taugakerfinu og knúið af því sem við hikandi köllum „lif“ mannsins. 1 þessu þrennu, lífinu, taugakerfinu og lik- amanum finnum við endurspeglunina og tákn hinnar stærri heildar. Með náinni athugun og skilningi á starfsemi þeirra og tengslum getum við náð skilningi á nokkrum þeirra aðalatriða og lögmála er stjórna innri sviðum mannsins og sköpuninni, þ. e. verki Guðs. Hinar þrjár hlið- ar guðdómsins, lífsorkan eða andi, samstillingarkrafturinn eða sálin og síðan það sem þetta tvennt notar og sameinar persónu er í raunveruleika eitt lífgefandi lögmál sem birt- ist í fjölbreytileika sköpunar. Þetta eru þrír í einum, hinn eini í þremur, Guð í náttúrunni og náttúran sjálf í Guði. Ef við leiðum hugmyndina, áfram til frekari skilnings inn á önnur hugarefni þar sem við getum séð verkun þess- arar þrískiptingar. í trúarfieiminum: sem hugmyndafræði, — í undirstöðu táknfræði og kenningum, — og sem ytra form, kirkjunni sjálfri. 1 stjórnmcdum: er það heildarút- koma þess sem við köllum vilja fólksins, hver svo sem hann kann að vera — í hinum ritaða lagabókstaf, — og framkvæmdastjórnun: 1 menntamálum: er það viljinn til þess að læra, — listir og vísindi — og hinu gríðarmikla skólakerfi: 1 heimspeki: er það kvötin til visku, — hinnar aðskildu stefnu hugsunar, og hin ytri framsetning kenn- inganna. Þannig gengur þessi eilífa þxágreining í gegnum allar deildir hins efnisbirta heims, hvort sem litið er á það snertanlega, það samstæða og skynjandi, eða það sem knýr. Það er þessi skynuga starfsemi sem klaufalega hefur verið nefnd „vitund“. Það er geta vitundarinnar sjálfi’ar, sem hefur í för með sér næma svörun gagnvart umhverf- inu og starfstækjum þessarar svöi’unar, hin stórkostlega tvískipting sálarinnar; endanlega er það heildarútkoma 52 MORGUNN

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.