Bankablaðið - 01.12.1955, Síða 16
kann að staía, raski ekki um ot' því efna-
hagskerfi, sem við búum við. En um það
verður vart deilt, eins og þá var háttað
málum, að láglaunafólk gat ekki lifað
sómasamlegu lífi á launum sínum. Jafn-
vel þó sleppt sé að gera ráð íyrir, að það
hefði löngun til að veita sér og sínum smá-
muni í skemmtunum, bókum og klæðnaði,
eins og venjulegt fólk gerir í okkar landi.
Vafalaust hefði verið eðlilegra þá, að
valdamenn hefðu reynt að fara leið verð-
lækkunar og sparnaðar. Með því hefði
verið reynt að fyrra vandræðum, sem nú
virðast steðja að í vaxandi mæli. Vert er
að minna á, að bankamenn og opinberir
starfsmenn eiga eftir að fá leiðréttingu
sinna mála. Alþingi er að ræða nýtt frum-
varp til launalaga. Verður ekki með
sanni sagt, að þeir liafi enn sem komið er,
haft tækifæri til að fagna sigri í kjaramál-
unum. Jafnvel þó að ný launalög verði sam-
þykkt, þá er það þegar viðurkennt, — áð-
ur en þau koma til framkvæmda, að grunn-
kaupshækkanir og tilfærslur milli launa-
flokka þyrftu að vera mun meiri, ef þær
ættu að svara til hliðstæðra hækkana og
aðrar stéttir hafa þegar fengið.
Bankamenn hafa fylgzt með baráttu
launþega fyrir bættum kjörum. Þeir hafa
fundið, hvernig kjörin hafa rýrnað miðað
við aðrar stéttir, sem hafa verkfallsrétt. Á
það hefur verið bent hér í blaðinu, að laun
bankamanna væru á þann veg, að með
öllu væri óviðunandi. Þessu hefur ekki ver-
ið mótmælt og almennt viðurkennt, að
fyllstu rök væru færð fyrir rétti okkar. Nú
stendur fyrir dyrum að endurskoða launa-
reglur bankamanna, sem annarra opin-
berra starfsmanna. Þess verður að vænta,
að margra ára misréttur verði leiðréttur.
Er ekki ástæða til að óreyndu, að van-
meta skilning hlutaðeigenda í þessum
f —
Lagboði: Taktu sorg mína, svala haf.)
Vernda mig óspilltan, góði guð.
Ger mig að barninu þínu.
Haltu í hjartanu mínu
heilögu boðunum þínum, —
ástúðarorðunum þinum.
Lýs þú upþ sál mína, Ijúfi guð,
ljósÍ7iu kœrleikans þínu.
Lát hana göfgast í lífsstarfi sínu.
(Orkt 1921, en í þann tíma var höf.
kennari að aðalstarfi.
GUÐM. R. ÓLAFSSON
úr Grindavík.
V_____________________________________J
málum. Stjórnendur bankanna hafa við
ýmis tækifæri sýnt bankamönnum vin-
semd og skilning. Bankamenn vænta
þess að svo verði enn. Að þeir geti án
blygðunar litið framan í vini sína og fé-
laga í öðrum stéttum og hjá einkafyrir-
tækjum, þegar Jaeir bera saman kjör
sín og kaup — Væntanlega mun end-
urskoðun á gildandi launareglum verða
lokið um eða eftir áramótin. Þá má gera
ráð fyrir, að launþegar yfirleitt hafi feng-
ið leiðréttingu á sínum málum og nokk-
urt samræmi sé í launamálum manna.
Þá ættu þeir, sem sjá vá fyrir hvers manns
dyrum, að taka höndum saman við þá, sem
viðurkenna voðann og reyna að bjarga
efnahagsmálunum og þjóðarskútunni
heilli í höfn, það er ósk allra lands-
manna.
22 BANKABLAÐIÐ