Bankablaðið - 01.12.1955, Page 19
/ hádegisverðarboði bankastjórnar Landsbankans í Þjóðleikhúskjallaranum.
KVÖLDBOÐ.
Bankastjórn Búnaðarbanka íslands
sýndi Sambandinu þann sóma að bjóða
fulltrúum til kvöldverðarboðs í veitinga-
húsinu Naustið að loknum fundi. Þórhall-
ur Tryggvason skrifstofustjóri, bauð full-
trúa velkomna til hófsins í nafni Búnaðar-
bankans, en bankastjórinn Hilmar Stef-
ánsson, gat ekki komið því við að sitja
hófið. Var setið í góðu yfirlæti undir borð-
um við hinn bezta veizlumat. Hjálmar
Bjarnason, fundarstjóri, þakkaði gott boð.
Síðar var staðið upp frá borðum og dval-
izt við samræður fram eftir kvöldi.
HÁDEGISBOÐ.
Bankastjórn Landsbanka íslands sýndi
sambandinu einning þann sóma að bjóða
fulltrúum til hádegisverðar í Þjóðleikhús-
kjallaranum. Allir bankastjórar bankans:
Jón G. Maríasson, Gunnar Viðar og Vil-
hjálmur Þór, og aðalbókari bankans, Svan-
björn Frímannsson sátu boð þetta og er
það út af fyrir sig mjög sjaldgæft að allir
BANKABLAÐIÐ 25