Bankablaðið - 01.12.1955, Side 24

Bankablaðið - 01.12.1955, Side 24
FREDERICK SONDERN, Jr.: SeSlaföísunm mikla í Portii^al Hið virðulega fyrirtæki Waterlow & Sons, Ltd. hefur aðsetur sitt í húsakynnum við 26 Great Winchester St. í Lundúnum, og þar fer fram hin þýðingarmikla og oft vandasama starfsemi þess, sem er í því fólg- in að framleiða bankaseðla fyrir ríkis- stjórnir víðs vegar um heim. Hinn 4. desember 1924 kom þangað Karel Marang van Ysselveere, viðurkennd- ur kaupsýslu- og fjármálamaður frá Haag, og lagði frarn skilríki sín sem sérstakur sendifulltrúi portúgölsku stjórnarinnar. Sir William Waterlow tók sjálfur á móti honurn þegar í stað, og skýrði hinn við- mótsþýði og fyrirmannlegi Hollendingur honum frá því, að Portúgalsbanki þyrfti að fá tafarlaust tvö hundruð þúsund 500 escudo seðla. Af stjórnmálalegum ástæðum yrði að halda útgáfu þessari leyndri, og því hefði bankastjórnin falið Marang að ganga frá samningum, heldur en að fara þá leið, sem venjulega væri farin á veg- um stjórnarinnar. Sir William kinkaði kolli til merkis um þar, að bankastjórn (4) meðtöldum. Þá var hægt að komast af með penna blýant og eina ritvél. En hvernig er það nú? Vafalaust eru það miklir framkvæmda- menn, sem nú stjórna Landsbanka íslands, sem ekkert tækifæri láta ónotað til þess að efla bankann og bæta starfs aðferðir, auka starfshraða og öryggi til þæginda og heilla fyrir alþjóð. að liann skildi, hvað um væri að ræða. Hann sagðist auðvitað þurfa að fá í hend- ur heimild frá bankastjórninni, auk venju- legs samnings. Hinn kurteisi Hollending- ur sagði, að sér væri það ljóst, enda mundu skjölin verða send tafarlaust frá Lissabon. Þannig hófst eitthvert dæmalausasta seðlafölsunarmál, sem um getur í fjármála- sögu heimsins. Næstu vikurnar bárust Waterlow og Sons ýmisleg skjöl, sem merkt voru ,,A1- gert trúnaðarmál“. Meðal þeirra var heini- ildarskjal til prentunar seðlanna, innsigl- að með innsigli bankastjóra Portúgals- banka, Camacho Rodrigues, og undirskrif- að af honum sjálfum. Þar var frá því skýrt, og var það algert trúnaðarmál milli banka- stjórans og Sir Williams, að Marang hefði verið veitt umboð til að taka á móti seðl- unum og flytja þá til Lissabon. Þar mundu þeir verða afhentir bankastjórnarnefnd, sem portúgalska stjórnin hefði skipað, og ætti nefndin að nota féð til að reisa við fjár- mál portúgölsku nýlendunnar Angola í Afríku. Þar sem peningana ætti aðeins að nota í Angola, mætti prenta þá með sömu myndamótum og sömu framhaldsnúmer- nm og seðlaprentsmiðja Waterlows hefði notað á síðustu útgáfu 500-escudo seðl- anna, er þá voru í umferð í Portúgal. Portúgalsbanki ætlaði að láta yfirprenta nýju seðlana með orðinu ANGOLA, til þess að koma í veg fyrir, að þeir rugluðust saman við þá útgáfu, sem þegar var í um- ferð. 30 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.