Bankablaðið - 01.12.1955, Page 32
mönnum bankans hefir Helgi Guðmunds-
son verið hollur ráðgjafi og leiðbeinandi.
Hvert mál hefir hann leitast við að kryfja
til mergjar en jafnframt verið skjótur í
ákvörðunum.
Starfsfólk Útvegsbankans hefir átt hauk
í horni meðan Helgi Guðmundsson hefir
skipað bankastjórasess í þessum banka.
Hann hefir verið starfsfólkinu einlæg-
ur og ágætasti húsbóndi enda ástæll af öll-
um æðri og lægri. Hann hefir verið vinur
fólksins og velgjörðarmaður þess. Oft hef-
ir hann greitt götu starfsfólksins á ýmsa
vegu og leyst úr margvíslegum vandamál-
um þess.
Starfsmannafélag Útvegsbankans hefir
Helgi Guðmundsson stutt mjög myndar-
lega og ætíð mætt óskum þess með velvilja,
skilningi og fyrirgreiðslu.
Það var skilningur Helga Guðmunds-
sonar á tilverurétti félags okkar, að Starfs-
mannafélag Útvegsbankans fékk á sínum
tíma afhentan fagran og stóran samkomu-
sal til fundahalda og skemmtana löngu
áður en aðrir bankamenn hlutu samastað
fyrir félagsstarfsemi sína. Og fyrir þann
samkomusal og aðbúnað að félagsstarf-
seminni liér var unnt að stofna eitt fyrsta
félagsmötuneyti, sem nú eru mörg orðin.
Helgi Guðmundsson hefir veitt starfs-
fólki bankans • ótal ánægjustundir í hin-
um árlegu bankatúrum. Hann var upp-
hafsmaður að því að bankastjórar og
starfsfólk færu áriega í sameiginlega
skemmtiför. Síðan hefir hann verið þátt-
takandi og forustumaður á hverju ári í
bankatúrunum. Hefir hann ávallt veitt
af rausn og verið hrókur alls fagnaðar.
Það er enginn vafi á jrví að slík sameigin-
leg mót yfirboðara og undirmanna auka
kynni og efla gagnkvæman skilning.
Margir eiga ljúfar endurminningar frá
Kristin Helgadóttir afhjúpar brjóstlikan
af föður sinum.
hinum vinsælu bankatúrum, en hjá flest-
um hygg ég að þar komi Helgi Guðmunds-
son alltaf fram í hugann.
Það tæki of langan tíma að telja hér
upp öll þau mál er Helgi Guðmundsson
hefir liaft afskipti af fyrir félag okkar og
félagsmenn, sem orðið hafa til velfarnað-
ar og bættra kjara, svo sem afskipti af
launamálum, kaupi á sumarhúsi, vinnu-
fatnaði.
En eitt máf gleymist aldrei. Það gnæf-
ir yfir öll önnur. Á ég hér við hlutdeild
Helga Guðmundssonar í stofnun og efl-
ingu Eftirlaunasjóðs starfsmanna Útvegs-
bankans. Þau átök, sem í því máli hafa
verið gerð á undanförnum 20 árum eru
framar glæstu vonum og hafa elft sjóð-
inn, svo að hann mun hlutfallslega einna
38 BANKABLAÐIÐ