Bankablaðið - 01.12.1955, Síða 36
Laugardaginn 19. nóvember s. 1. hélt
starfsfólk Útvegsbankans kveðjuhóf í há-
tíðasal Útvegsbankans til heiðurs og í þakk-
arskuld við Helga Guðmundsson banka-
stjóra, Guðmund Ólafs bankafulltrúa og
Halldór Halldórsson bankafulltrúa. Auk
þeirra voru heiðursgestir konur þeirra
allra.
Auk starfsfólksins tóku bankastjórarnir
þátt í kveðjuhófinu og utan Reykjavíkur
sóttu hófið útibússtjórarnir á Akureyri og
Siglufirði, Svavar Guðmundsson og Hafliði
Helgason. Útibússtjórarnir í Vestmanna-
eyjum og ísafirði höfðu einnig ráðgert að
mæta, en annar komst eigi vegna veikinda
en hinn tafðist á leiðinni vegna veðurs.
Þátttakendur í kveðjuhófinu voru um
eitt hundrað. Hófst það kl. 2 e. h. með því
að þriggja manna hljómsveit undir stjórn
Carls Billich lék nokkur lög meðan geng-
ið var til borða. í hljómsveitinni voru auk
Billich, sem lék á píanó, Felzman, er lék
á fiðlu og Moráveck, er lék á celló. Lék
hljómsveitin meðan hófið stóð yfir, undir
borðum og milli ræðuhalda, sígild lög og
íslenzk ættjarðarlög.
Formaður Starfsmannafélags Útvegs-
bankans, setti hófið og stjórnaði því. Hann
bauð heiðursgesti og aðra veizlugesti vel-
komna og hófst síðan borðhald, margrétt-
að kalt borð.
Herra bankastjóri Valtýr Blöndal flutti
þvi næst ræðu, kveðju og þakkarorð til
heiðursgestanna. Rifjaði liann upp fyrri
störf Helga Guðmundssonar í Landsbanka
íslands og fór lofsamlegum orðum um
dugnað hans og kraft, er einkenndu öll
hans störf, samfara einbeittri ákefð að koma
áhugamálum sínum áfram. Hann minntist
þess að í Útvegsbankanum liafi samstarl'
þeirra farið vaxandi og batnandi þau 17
ár, er leiðir þeirra lágu saman, enda við
sameiginleg vandamál að glíma og ráða
fram úr. Þá lét bankastjórinn í Ijós marg-
vísleg og makleg viðurkenningarorð í garð
Halldórs Halldórssonar fyrir mikla og
raungóða þekkingu á bankastörfum og
hæfni og vilja til þess að miðla öðrum
af reynslu og þekkingu 36 ára starfsævi í
bankastarfi. Ennfremur fór bankastjórinn
þakkar og viðurkenningarorðum um störf
Guðmundar Ólafs i þágu Útvegsbankans
og óskaði þess að gott samstarf mætti tak-
ast milli Útvegsbankans og Iðnaðarbank-
ans, þegar Guðmundur væri tekinn við
bankastjórn þar.
Einar E. Kvaran aðalbókari mælti fyrir
minni Halldórs Halldórssonar. Rifjaði
hann upp fyrstu kvnni þeirra í íslands-
banka fyrir 36 árum. Frá þeirri stundu
hafa þeir báðir verið starfsmenn í sömu
stofnun. Kom það oft fram í ræðu Kvarans
hversu góðir vinir þeir Halldór hafa alltaf
verið og hve miklar mætur hann hefir
haft á honum. Minntist hann skólagöngu
Halldórs, starfshæfni og margháttaðra
starfa, sem Halldór hefir leyst af höndum
fyrir bankann, ekki einungis í Reykjavík
og öllum útibúum bankans heldur og hefir
liann verið forstjóri fyrirtækja, er bank-
inn hefir um stundarsakir orðið að taka í
42 BANKABLAÐIÐ