Bankablaðið - 01.12.1955, Side 38

Bankablaðið - 01.12.1955, Side 38
INGI KRISTMANNS bankaritari átti 50 ára afmæli þann 13. nóvember s. 1. Hann fæddist að Garðsstöðum í Vest- mannaeyjum. Þar ólst hann upp og hóf ungur störf við póstafgreiðslu, fyrst í Vestmannaeyjum og síðan um nokkurt skeið í Reykjavík. Ingi réðist í þjónust ís- landsbanka þann 1. janúar 1928 og liefir síðan starfað þar og í Útvegsbankanum. Fyrstu 18 starfsárin vann hann í útibúi bankans í Vestmannaeyjum, en kom fyrir 9 árum til starfa í aðalbankanum í Reykja- vík. Ingi er hinn mesti dugnaðarmaður við störf, röskur og lipurmenni í afgreiðslu. Hann kemur sér vel við viðskiptamenn- ina við afgreiðsluborðið í Útvegsbankan- um. Ingi er hinn bezti félagsmaður og ávallt fús og reiðubúinn að leysa af hendi með glöðu geði öll störf, er starfsmanna- félagið felur honum. Bankablaðið og samstarfsfólk Inga, senda honum og hans ágætu konu, Sigríði AXEL BÖÐVARSSON víxlakókari átti 65 ára afmæli þann 28. júlí s. 1. Þann dag dvaldi hann í Landsspítalanum, þungt haldinn af sjúkdómi, er um nokk- urt skeið hafði þjáð hann mjög. Nokkru síðar náði hann sér svo að hann komst heim og hefir heilsu hans farið batnandi síðustu vikurnar. Það er von allra vina Axels að hann nái fullum bata hið fyrsta og starfsþreki að nýju. Axel Böðvarsson er fæddur Akurnesing- ur, af merku dugnaðarfólki kominn, dreng- skaparmaður og hverjum manni fús til ' hjálpar og fyrirgreiðslu. Hann hefir átt óslitinn starfsaldur í íslandsbanka og Út- vegsbankanum í rúm 36 ár. Axel er kvænt- ur hinni ágætustu konu, Margréti Stein- dórsdóttur, er einnig starfaði í sömu stofn- un í 31 ár, er hún hætti störfum vegna vanheilsu. Margrét átti 55 ára afmæli 6. sept. s. 1. Samstarfsfólk þeirra lijóna, sendir þeim, í tilefni þessara merku tímamóta, hugheil- ar hamingjuóskir. Þorgilsdóttur, innilegar kveðjur og beztu framtíðaróskir. Á heimili þeirra hafa margir gestir not- ið góðra stunda. 44 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.