Bankablaðið - 01.12.1955, Page 43

Bankablaðið - 01.12.1955, Page 43
um allt þetta og jafnframt óvissan, um hvort þetta væri Anna liennar, urðu henni um megn, og hún var að því komin að hníga niður, þegar miðaldra maður, sem gekk hjá, greip um handlegg hennar og ávarpaði liana. — Afsakið frú, en er yður ekki að verða illt? Get ég nokkuð aðstoðað, náð í bíl eða hjálpað yður heini? Ég er á leið hérna vestur í bæinn, svo að ef við eigum sam- leið og þér kynnuð að óska eftir samfylgd minni, Jrá er hún velkomin. Hún áttaði sig ekki strax á öllu því, sem skeð hafði, og gat því ekki svarað alveg strax, en nú leit hún á mannin, og er hún sá, að góðvildin skein af honum, að því er henni fannst, sagði hún. — Þakka tyður fyrir, en ég held, að Jaetta líði hjá. Annars vildi ég gjarnan Jjiggja samfylgd yðar, ef við eigum sam- leið. Þau urðu samferða, unz Jjau komu að húsinu, en þá sagði hún. — Þakka yður kærlega fyrir vinsemdina, en nú er ég komin heim. — Það var undarleg tilviljun. Ég ætlaði einmitt í þetta sama hús. Þér þekkið ef til vill ungfrú Önnu Sveinsdóttir. — Já, vissulega. Ætluðuð Jrér að finna hana? — Ekki beinlínis, en mætti ég ekki biðja yður fyrir Jrennan pakka til hennar. Það er smáveigis jólaglaðningur, sagði hann og dró öskju upp úr vasa sínum. — Frá yður? Hver eruð þér, og hvernig Jrekkið Jjér Önnu? Ég er nefnilega móðir hennar. — Einmitt það. Gleður mig að kynn- ast yður. Ég er Ögmundur Álfsson, vinnu- veitandi hennar. — Fyrst svo er, má ég þá ekki bjóða yður að koma innfyrir og þiggja kaffisopa? GLEÐILEG JÓL! Farsœlt nýtt ár! BLÓMABÚÐIN FLÓRA GLEÐILEG JÓL! Farsœlt nýtt ár! HRESSINGARSKÁLIN N GLEÐILEG JÓL! Farsœlt nýtt ár! VERZLUNIN BRYNJA GLEÐILEG JÓL! Farscélt nýtt ár! BÓKAVERZLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR Gleðileg jól! FARSÆLT NYTT AR! KJOT & GRÆNMETI H.F. Snorrabraut, síniar: 2853 og 80253. Melliaga 2, sími 82936. BANKABLAÐIÐ 49

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.