Bankablaðið - 01.12.1955, Qupperneq 45
og jafnvel þótt ekki væri annað en fortöl-
ur, aðeins gera illt verra. Svo er nú lield-
ur alls ekki víst, að þetta sé svo mjög al-
varlegt.
Allt í einu heyrðist umgangur í stigan-
um. Stofuhurðinni var lokið upp, og í
dyrunum stóð Anna. Ef vel var að gáð,
mátti sjá ölvímu í augum hennar. Hún
varð undrandi í íyrstu, en sagði svo.
— Svo þið þekkist þá; ekki vissi ég það.
— Já, ekki ber á öðru, svaraði Ögmund-
ur glaðlega. Satt að segja kynntumst við
fyrst í Grjótagötunni í dag. Komdu ann-
ars sæl, Anna.
— Já, sæl verið þið, sagði Anna. En auð-
veldlega mátti sjá, að henni brá við orð
Ögmundar.
Nú kom ungur, kraftalegur maður í ljós
á bak við Önnu, og benti hún honum að
ganga inn.
— Mamma, þetta er kærastinn minn,
Þorsteinn Eilífsson. Við ætlum, vonandi
með þínu góða samþykki, að opinbera
trúlofun okkar í kvöld.
— En, Anna mín — sagði móðirin, lengra
komst hún ekki, Jrví að Ögmundur lagði
róandi höndina á öxl liennar og sagði:
— Einmitt það. Dugandi maður að því
er virðist. Síðan spurði hann.
— Hafið þið verið að skemmta ykkur í
dag? Hefði ekki verið skynsamlegra fyrir
þig, Anna mín, að vera heima hjá
mömmu Jrinni og hjálpa lienni og láta
fund þinn við unnustann bíða kveldsins?
£n fyrirgefið mér annars. Ég er hér að
blanda mér í mál, sem mér kemur ekkert
við.
— Allt í lagi, Ögmundur, sagði Anna.
Eigum við ekki að koma fram í eldhús,
Steini, og fá okkur eitthvert snarl?
Er þau höfðu lokað hurðinni á eftir sér,
\
j GLEÐILEG JÓL
) Farsœlt nýtt ár!
/ KJÖTBÚÐ SÓLVALLA
(☆☆☆☆☆☆
/ GLEÐILEG JÓL!
I Farsælt nýtt ár!
j ÚLTÍMA H.F.
;☆☆☆☆☆☆
j GLEÐILEG JÓL!
( Farsælt nýtt ár!
j MARTEINN EINARSSON & CO.
j ☆ ☆ ☆ ☆ ☆ ☆
GLEÐILEG JÓL!
( Farsælt nýtt ár!
/ VERZLUNIN BALDUR
j FRAMNESVEGI 29
)☆☆☆☆☆☆
j GLEÐILEG JÓL!
j Farsælt nýtt. ár!
| HÚSGAGNAVERZLUN
j KRISTJÁNS SIGURGEISSONAR
)■☆☆☆☆☆☆
j GLEÐILEG JÓL!
j Farsælt nýtt ár!
{
/ TJARNARCAFE
)
BANKABLAÐIÐ 51