Bankablaðið - 01.12.1955, Qupperneq 46

Bankablaðið - 01.12.1955, Qupperneq 46
sneri Ögmundur sér að móður Önnu og sagði: — Ég vona, að þú i'yrirgefir frumhlaup mitt, en þetta virðist vera efnilegasti mað- ur, þó að hann hafi vafalítið lifað nokk- uðhátt eins og unglingum hættir við nú á tímum. Ég vildi svo gjarnan vera í spor- um hans, bætti hann svo við í lægri tón, en þó því aðeins, að þú værir Anna. Hún fékk ekki staðizt lengur, en féll snöktandi í arma hans. Það varð henni um megn að finna svona mikið öryggi allt í einu, eftir öll þessi hræðilegu og öryggis- lausu ár. Eftir allt vonleysið, sem hún hafði sökkt sér niður í. Þau hrukku upp við að liurðin frá eld- húsinu opnaðist og Sveinn kom inn og lok- aði á eftir sér, en horfði þó fram í eld- húsið meðan hurðin hallaðist að stöfum. Svo sagði hann óðamála: — Mamma, hvaða strákur er í — lengra komst hann ekki. Hann hafði komið auga á Ögmund og starði á hann með galop- inn munn. Síðan stökk hann aftur fram í eldhúsið, en um leið hrökk upp úr hon- um: — Hvað er þetta? Allt fullt af karlmönn- um! Er þetta jólaboð eða hvað? Þau hlógu við og gengu fram í eldhúsið á eftir honum. LEIÐRÉTTINGAR. Þær villur hafa slæðst í frásagnir blaðsins uin starfsafmæli, að Einar Þorfinnsson í Lands- bankanum var talin eiga 25 ára starfsafmæli 6. júní 1954, en átti að vera 23. sept. s. á. Starfsafmæli Péturs H. Magnússonar er talið 21. marz s. 1., en átti að vera 1. okt. 1953 eins og þá var réttilega sagt frá hér í blaðinu. — Biður blaðið afsökunar á þessum mistökum. Frá ISnaðarbankanum ij <•.«•} IfcÁÍ Stjórii starfsmannafélags IðnaÓarhankans. Starfshópur Iðnaðarbankans hefur stofn- að með sér íélag. Stofnfundur var hald- inn 5. dag júlímánaðar síðastliðinn. Hefur félagið þegar gerst aðili að heildarsamtök- um bankamanna. Félagsmenn eru nú 14, og þótt sá hópur sé ekki stór hyggur hann gott til samstarfs og samstöðu við starfs- mannahópa annarra banka. í stjórn starfs- mannafélags Iðnaðarbanka íslands eiga sæti: Ari ísberg formaður, Gíslína Frið- björnsdóttir ritari og Jón G. Bergmann gjaldkeri. Iðnaðarbankinn er yngstur banka hér á landi að starfssögu. Hins vegar hefur liann þegar gert mikið gagn að styðja iðju og iðnað í landinu. Þröng og erfið húsakynni hafa háð að nokkru starfssemi hans til þessa, en nú mun í aðsígi úrbót í því máli um komandi áramót. Starfsfólk Iðnaðarbanka íslands óskar banka sínum gengis um framtíðarár og sendir öðru starfsfólki bankastofnana beztu kveðju sína. Ó. H. J. 52 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.