Bankablaðið - 01.12.1967, Side 8
Stórbruni i Reykjavik.
að sú starfsemi sem ekki mátti stöðvast, og
áður en liðið var að hádegi, var björgunar-
starfið komið í fullan gang, unnu nú allir,
bæði bankastarfsfólkið og aðfengnir vinnu-
flokkar, að því að hreinsa til í rúsmnum.
Stefnt var að því að starfsemin gæti hafizt
aftur að morgni mánudagsins 13. marz,
fjórða daginn eftir brunann. Það var mikil
bjartsýni að ætla sér þetta, því hafa verður í
huga, að allur húsbúnaður, vélar og tæki,
sem allt að helmingur starfsfólksins þurfti á
að halda, hafði eyðilagzt og auk þess var hús-
rými þess ónothæft. En þetta tókst með því
að nýta helming af afgreiðslugólfi viðskipta-
manna, kjallara hússins og jafnvel sýningar-
glugga, sem vinnupláss.
Það kom fljótt í Ijós, að allir sem leitað
var til og jafnvel fleiri, voru reiðubúnir að
bjóða fram aðstoð sína til þess að sem
minnst truflun hlytist af óhappi þessu, fyrir
starfsemi bankans.
Nú, tæpum 9 mánuðum eftir brunann, er
ennþá unnið af fullum krafti að viðgerð húss-
ins og ennþá er nokkuð í land með að henni
verði lokið, en óhætt mun að fullyrða, að ekki
hefur í annan tíma verið betra samstarf með
starfsfólki bankans öllu, en eftir brunann og
það þrátt fyrir mikil þrengsli og erfið starfs-
skilyrði og þessi góði samstarfsvilji á drjúgan
þátt í hve giftusamlega hefur úr rætzt. Það
sannast því hér, eins og oft áður, að þegar
alvarlegir atburðir steðja að og verulega
reynir á mannin, þá bregst hann ekki og þá
kemur í Ijós hvað með honum býr.
6 BANKABLAÐIÐ