Bankablaðið - 01.12.1967, Side 26
Nýja Búnaðarbanka-
útibúið i Hveragerði.
stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akur-
eyri árið 1931. Hóf hann síðan nám í lög-
fræði við Háskóla Islands, en hvarf frá
námi, er hann byrjaði að starfa í Búnaðar-
bankanum, í kreppulánasjóði 9. apríl 1934.
Tryggvi Pétursson er einn af elztu og
reyndustu bankamönnum landsins með mikla
og víðtæka reynslu í bankastarfsemi og
bankamálum eftir 34 ára starf í Búnaðar-
bankanum. Hann hefur tekið mikinn þátt í
félagsmálum bæði innan bankans og utan.
Tryggvi er kvæntur Guðrúnu Jónasdóttur,
og eiga þau hjónin 4 uppkomnar dætur.
Sparisjóður Hveragerðis og nágrennis
hættir nú starfsemi sinni og sameinast Bún-
aðarbankanum. Innstæður í sparisjóðnum
námu um 9 millj. kr. við sameininguna.
Miklar breytingar hafa verið gerðar á húsi
bankans undir stjórn Stefáns Guðmundsson-
ar byggingarmeistara og Svavars Jóhanns-
sonar skipulagsstjóra Búnaðarbankans.
Húsakynni hins nýja útibús eru mjög
smekkleg, en teikningar af breytingum á
húsnæði bankans voru gerðar á Teiknistofu
landbúnaðarins af Þóri Baldvinssyni og Sig-
urði Geirssyni, en skipulagningu innanhúss
annaðist Svavar Jóhannsson skipulagsstjóri
Búnaðarbankans. Aðalgjaldkeri hins nýja
útibús er Ragnar G Guðjónsson og bókari
er Alda Andrésdóttir.
BANKABLAÐIÐ
Fyrirhugað er að næsta Bankablað komi
út í febrúarmánuði n.k. Ráðagerðir eru uppi
um það að blaðið komi út á næsta ári a. m. k.
fjórum sinnum. Þó er vert að minnast þess,
að til þess að það geti orðið, verða banka-
menn að senda blaðinu efni til birtingar.
Oft er talað um það í bönkunum að blaðið
komi sjaldan út og þá með meira og minna
úreltu efni. Nú gefst þeim mönnum, sem
gagnrýnt hafa blaðið að ráða nokkra bót á
einhæfni blaðsins. Reynslan mun svo skera
úr um það, hvort möguleikar séu á að halda
blaðinu reglulega úti á næsta ári.
24 BANKABLAÐIÐ