Bankablaðið - 01.12.1967, Side 29
Þing Sambands íslenzkra bankamanna
Þing sambands íslenzkra bankamanna var
haldið í Reykjavík dagna 7.—9. apríl s.l. í
húsakynnum S.I.B. að Laugavegi 103.
Formaður S.I.B. setti þingið með smttri
ræðu. Bauð gesti velkomna en þeir voru:
Kristján Thorlacius, formaður Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja, Gunnar Swedborg,
formaður Sænska bankamannasambandsins,
C. A. Weiser-Svendsen, varaformaður Norska
bankamannasambandsins.
Þá flutti Kristján Thorlacius kveðjur og
árnaðaróskir BSRB, þakkaði gott samstarf og
árnaði þinginu heilla og vænti þess að þing-
störfin gengju vel og yrðu árangursrík fyrir
bankamenn og launþega yfirleitt.
Þingforsetar voru kjörnir: Vilhelm Stein-
sen, deildarstjóri í Landsbankanum og Svavar
Jóhannsson, skipulagsstjóri Búnaðarbankans.
Þingritarar voru kjörnir: Guðjón Halldórs-
son, deildarstjóri í Fiskveiðasjóði Islands og
Sigurborg Hjaltadóttir, Búnaðarbankanum.
Kjörbréfanefnd hafði starfað og lagði ein-
róma til að öll kjörbréf væru samþykkt og
var svo gjört með samhljóða atkvæðum.
Kjörnir fulltrúar voru 58 frá eftirtöldum
starfsmannafélögum:
Starfsmannafélagi Búnaðarbankans 8 fulltr.
Starfsmannafélagi Iðnaðarbankans 3 fitr.
Félagi starfsmanna Landsbanka ísl. 21 fltr.
Starfsmannafélagi Samvinnubankans 4 fltr.
Starfsmannafél. Seðlabankans 5 fulltr.
Starfsmannafélagi Sparisjóðs Reykjavíkur
og nágrennis 1 fulltrúi
Starfsmannafélagi Utvegsbankans 12 fltr.
Starfsmannafélagi Verzlunarbankans 4 fltr.
Starfsmannafélag Sparisjóðs Hafnarfjarðar
sendi engan fulltrúa. Björn Magnússon, bók-
ari í Sparisjóði Kópavogs sat þingið, en þar
hefir ekki enn verið stofnað Starfsmannafé-
lag, þar sem ekki eru nógu margir fastráðnir
starfsmenn.
Formaður S.I.B., Sigurður Orn Einarsson,
flutti starfsskýrslu stjórnarinnar, sem hafði
verið útbýtt fjölritaðri meðal þingfulltrúa.
Nokkrar umræður urðu um skýrsluna. Sér-
staklega um tillögu um laugardagslokunina
yfir mánuðina frá miðjum maí til september-
loka og breyttan opnunartíma bankanna. Þar
er m.a. ákveðið að bankarnir skuli byrja af-
greiðslu kl. 9.30 í stað kl. 10 og taki þess-
ar reglur gildi um leið og laugardagslokunin.
Gunnlaugur Björnson, Utvegsb., hóf um-
ræður og gagnrýndi tillöguna og taldi að
hér væri verið að lengja vinnutíma starfsfólks
í ákveðnum banka. Taldi að hér væri verið
að leika sama skrípaleikinn og leikinn hefði
verið með laugardagslokuninni á liðnu sumri.
Varpaði hann fram þeirri spurningu, hvort
sambandsstjórnin hefði lagt blessun sína yfir
þessa tillögu. Tillagan um laugardagslokun-
ina, sem lá fyrir til umræðu, var:
1. Bankarnir loki afgreiðslum sínum á laug-
ardögum frá 15. maí til 30. september.
2. Frá 15. maí 1967 breytist afgreiðslutími
bankanna þannig, að þeir opni allir kl.
9.30 árdegis, en lokunartími verði óbreytt-
ur frá því sem nú er.
3. Frá sama tíma verði mætingartími starfs-
manna einnig samræmdur í öllum bönk-
unum þannig að þeir hefji starf eigi síðar
en kl. 9-15 allt árið.
BANKABLAÐIÐ 27