Bankablaðið - 01.12.1967, Síða 30
Fundarritarar,
sambandsstjórn og
jundarstjóri
á þingi S.I.B.
4. Ávísanaskipti Seðlabankans hefjist kl. 9
árdegis allt árið og hefjist starfstími við-
komandi starfsmanna kl. 8.55.
5. Landsbanki Islands og Utvegsbanki Is-
lands hafi opna gjaldeyrisskiptistöð fyrir
útlenda ferðamenn á laugardögum á ofan-
greindu tímabili, ef þeir telja þess þörf.
Adolf Björnsson, Utvegsbankanum, taldi
það öfugþróun að lengja starfstíma starfs-
manna Búnaðarbankans og Utvegsbankans
langt úr hófi fram. Taldi eðlilegt að máli
þessu væri vísað til nefndar.
Formaður, Sigurður Orn Einarsson, svar-
aði fyrirspurn Gunnlaugs Björnson á þá leið,
að sambandsstjórnin hafi ekki gert neina
samþykkt um tillöguna um laugardagslok-
unina.
Hannes Pálsson, Búnaðarbankanum, taldi
eðlilegt að bankarnir væru opnir hálftíma
lengur á dag þann tíma sem laugardagslok-
unin væri ákveðin, eða í fjóra og hálfan mán-
uð, en bankarnir vildu ekki samþykkja það.
Hann taldi nauðsyn á að fá sem flestar til-
lögur um lausn þessa máls.
Vilhelm Steinsen, Landsbankanum, taldi
sjálfsagt að bankarnir yrðu opnaðir kl. 9.30,
og kvað vinnutímann ekki breytast hjá meiri-
hluta bankamanna.
Einar A. Jónsson, Sparisjóði Reykjavíkur
og nágrennis, taldi rétt að opnunartíminn
væri kl. 9.30 allt árið, en á næstu árum
lengdist það tímabil er lokað yrði á laugar-
dögum, þar til svo árið 1969 yrði lokað á
laugardögum allt árið.
Þegar hér var komið umræðum, lagði
Hannes Pálsson til, að tillögum samvinnu-
nefndarinnar væri vísað til allsherjarnefndar,
sem var samþykkt með öllum greiddum at-
kvæðum.
28 BANKABLAÐIÐ