Bankablaðið - 01.12.1967, Side 58
S.I.B. opnar skrifstofu og ræður starfsmann
Með vaxandi umsvifnm Sambands isl-
enzkra bankamanna, hefur orðið enn Ijós-
ari þörfin fyrir föstum samastað fyrir sam-
tökin. Þd einnig þörfin á föstum starfskrafti,
sem gœti sinnt þeim störfum, sem til þess
hafa verið innt af hendi i sjálfboðaliðs-
vinnu. Fjárhagsgrundvöllur hefur ekki
verið fyrir hendi til þessarar starfsemi og
takmarkaður áhugi bankamanna, hefur gert
það að verkum, að ekki hefur verið gerð
tilraun til að tryggja fjárhagsgrundvöll sam-
bandsins.
Á siðasta ári varð loks úr þvi, að samtökin
eignuðust eigin húsneeði, að Laugarvegi
103 — efstu hœð, þar sem Bankaskólinn er
nú til húsa. Einnig er þar skrifstofa sam-
bandsins og Bankablaðsins. Fremur litil
umsvif hafa verið þar að hálfu SÍB, og
húsnœðið ekki notað sem skyldi.
Umrœður á helgarráðstefnunni á Akur-
eyri leiddi í Ijós, að áhugi var fyrir hendi
að efla sambandið og ráða starfsmann hluta
úr degi. Þá voru starfsmannafélögin hvött
til að tryggja fjárhagsgrundvöll samtakanna,
þannig að hœgt vœri að ráða fastan starfs-
mann. Einnig var gerð samþykkt á ný af-
stöðnu þingi SÍB þar sem skorað var á
starfsmannafélögin að heekka árgjöld félag-
anna, svo að heegt veeri þegar að ráða starfs-
mann.
Á fundurn stjórnar SÍB hefur og verið
rcctt um þessi mál. í nóvemberlok var ákveð-
ið að fara þess á leit við Sigurð Guttormsson
fyrrverandi formann Starfsmannafélags Út-
vegsbankans, að hann teeki að sér að vinna
fyrir samtökin tvo tima á dag. Varð það úr
og þarf ekki að kynna Sigurð fyrir banka-
mönnum. Hann hefur starfað lengi i þjón-
ustu Útvegsbankans og er einn af þeim
ungu mönnum, sem hafa náð eftirlauna-
aldri liðlega sextugur. Mun hann starfa í
skrifstofu sambandsins að Laugarvegi 103,
og eru miklar vonir bundnar við starf hans.
Allir sem kunnugir eru Sigurði fagna, að
hann skuli hafa Ijáð máls á þvi að taka að
sér fyrstu skrifstofu sambandsins. Vinna þá
undirbúningsvinnu, sem þarf til að koma
starfseminni af stað.
Eins og fyrr segir þá er skrifstofan í húsa-
kynnum sambandsins og veentir stjórn SÍB
þess að bankamenn komi þar og kynni sér
þá starfsemi er þar fer fram.
Að svo meeltu bjóðum við Sigurð Gutt-
ormsson hjartanlega velkominn til starfa
fyrir islenzka bankamenn.
Hann afkastar 50 tnanna starfi, en það þarf
50 menn til að þjóna kauða — og 8 til að stjórna
og sjá utn hann!
56 BANKABLAÐIÐ