Bankablaðið - 01.12.1971, Síða 11
Sambandsþing 1971
Reglulegt þing Sambands íslenzkra banka-
manna var haldið í húsakynnum sambands-
ins að Laugavegi 103, Reykjavík, dagana
19., 20. og 21. apríl 1971. Formaður sam-
bandsins, Hannes Pálsson, setti þingið og
minntist í upphafi látinna félaga.
Þingforsetar voru kjörnir Helgi Bachmann
og Guðmundur Arnason og þingritarar þau
Sigurborg Hjaltadóttir og Sveinbjörn Egils-
son.
Nefndir þingsins skipuðu:
Kjörbréfanefnd: Arni Sveinsson, Adolf
Björnsson og Guðmundur Arnason.
Uppstillingarnefnd: Sólon Sigurðsson,
María Pétursdóttir, Guðmundur Arnason,
Skúli Sigurgrímsson, Þór Símon Ragnarsson,
Aðalsteinn Olafsson, Bjarni Tómasson og
Einar A. Jónsson.
Allsherjarnefnd: Adolf Björnsson, Þor-
steinn Egilsson, Gunnar Már Hauksson,
Gunnar Sigurjónsson, Aðalsteinn Júlíusson,
Eiríkur Hannesson og Stefán M. Gunnarsson.
Gestir þingsins voru Gunnar Swedborg
frá Svíþjóð, Fr. Holst Pedersen frá Noregi,
Kristján Thorlacius, form. BSRB, og Ing-
ólfur Stefánsson frá Farmanna- og fiski-
mannasambandi Islands, og fluttu þeir allir
stutt ávörp í þingbyrjun.
Formaður sambandsins flutti skýrslu stjórn-
arinnar, sem síðar var útbýtt fjölritaðri til
þingfulltrúa.
Þennan fyrsta dag þingsins þágu fulltrúar
boð bankamálaráðherra, sem haldið var í ráð-
herrabústaðnum.
*
A öðrum degi þingsins flutti bankamála-
ráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason, erindi um
þróun íslenzkra bankamála, og ennfremur
flutti Asgeir Magnússon forstjóri erindi um
hóptryggingar.
Olafur S. Ottósson, gjaldkeri sambandsins,
flutti og skýrði reikninga liðins kjörtíma-
bils og voru þeir samþykktir.
A kjörtímabilinu hafði starfað Laga- og
skipulagsnefnd undir forsæti Sigurðar Arnar
Einarssonar, og flutti Sigurður skýrslu nefnd-
arinnar og tillögur til lagabreytinga.
Hér fara á eftir þær tillögur og ályktanir,
sem þingið samþykkti:
Kosningar:
I stjórn fyrir næsta kjörtímabil, sem er
tvö ár, voru kosin: Formaður: Hannes Páls-
son.
Aðalmenn í stjórn: Guðjón Halldórsson,
Olafur S. Ottósson, Stefán M. Gunnarsson
og Þorkell Magnússon.
Til varastjórnar: Einar Ingvarsson, Aðal-
steinn Olafsson, Jón G. Bergmann og Ragn-
heiður Hermannsdóttir.
Endurskoðendur voru kjörnir: Olafur
Gunnlaugsson og Jóhann T. Ingjaldsson, til
✓
vara Arni Sveinsson.
Arshátíð sambandsins var að kvöldi síð-
asta þingdags, sem bar upp á síðasta vetrar-
dag, haldin að Hótel Sögu, Súlnasal, og var
þar húsfyllir og almenn ánægja samkomu-
gesta. Undirbúningur allur fyrir þá hátíð var
undir öruggri stjórn Adolfs Björnssonar.
A síðasta degi þingsins voru tillögur Laga-
og skipulagsnefndar ræddar og fara hér á
eftir lög Sambands íslenzkra bankamanna
eins og þau voru samþykkt í heild af þinginu.
BANKABLAÐIÐ 9