Bankablaðið - 01.12.1971, Page 13
Nokkrir forystumenn norrxnna bankamanna.
8. gr.
A sambandsþingi skulu þessi mál tekin fyrir:
1. Skýrsla sambandsstjórnar.
2. Reikningsskil.
3. Lagabreytingar.
4. Kosning stjórnar.
5. Kosning tveggja endurskoðenda og tveggja
til vara.
6. Akvörðun um árgjöld sambandsfélaga.
7. Onnur mál.
IV. SAMBANDSSTJÓRN.
9. gr.
Stjórn sambandsins skal kosin til tveggja ára
í senn. Skal hún skipuð 5 bankamönnum búsettum
í Reykjavík eða nágrenni. Stjórnarkjöri skal hag-
að þannig, að formaður sé kosinn sér, en hinir
fjórir saman og skipta þeir með sér störfum vara-
formanns, ritara, gjaldkera og meðstjórnanda.
Heimilt skal þeim aðildarfélögum, er engan full-
trúa eiga í fullskipaðri sambandsstjórn, að til-
nefna einn fulltrúa hvert til setu á stjórnarfund-
um með málfrelsi og tillögurétti, en án atkvæðis-
réttar. Skylt er að boða þá fulltrúa á alla fundi
fullskipaðrar stjórnar.
Um formann skal fram fara bundin leynileg
kosning milli þeirra, er uppstillingarnefnd mælir
með og hinna, sem studdir eru af öðrum þing-
fulltrúum. Hvert framboð skal stutt fimm með-
mælendum eða fleiri. Fái ekkert formannsefni
hreinan meirihluta greiddra atkvæða í fyrstu um-
ferð, skal fara fram bundin leynileg kosning
milli þeirra tveggja, er flest atkvæði fengu í
fyrri umferð og er þá sá rétt kjörinn, er fleiri
atkvæði hlýtur.
Við kosningu meðstjórnenda og varastjórnenda
má viðhafa hlutfallskosningu. Skulu þá fundar-
stjóra afhentir listar með 8 nöfnum, 4 aðalmönn-
um og 4 til vara, og fylgi hverjum lista minnst
5 meðmælendur. Sé hlutfallskosning ekki við
höfð, skal kosið eftir sömu reglum og við for-
mannskjör, með þeirri breytingu, að kosnir eru
4 saman í stað 1. Þá skulu kosnir 4 varastjórn-
BANKABLAÐIÐ 11