Bankablaðið - 01.12.1971, Page 14

Bankablaðið - 01.12.1971, Page 14
endur og eru þeir, er flest atkvæði fá, réttkjörn- ir og skulu taka sæti í aðalstjórn í þeirri röð, sem þeir eru kosnir. í þessum kosningum ræður hlutkesti úrslitum séu atkvæði jöfn. Að öðru leyti fer kosningin fram eftir nánari ákvörðun þingsins. 10. gr. Stjórn sambandsins stjórnar málefnum þess milli þinga og er fulltrúi sambandsfélaga í þeim málum, er varða stéttina almennt. Hún boðar til sambandsþinga, sbr. 7. gr. Einnig getur hún kvatt til aukaþinga, þyki henni nauðsyn til bera, og er skylt að gera það ef 10 fulltrúar eða fleiri óska þess. Aðal stjórnarfundir skulu haldnir svo oft sem stjórninni þykir við þurfa og eru þeir lögmætir ef meirihluti hennar er mættur. Gerðabók skal haldin yfir fundi þessa og undirrituð hverju sinni af viðstöddum stjórnarmönnum. Fullskipuð sambandsstjórn, aðalstjórn og vara- stjórn, skal koma saman til fundar eigi sjaldnar en einu sinni á hverjum þrem mánuðum, og oftar ef ákvörðun þarf að taka um meiriháttar mál að dómi aðalstjórnar. Á þessa fundi skal einnig boða formenn aðild- arfélaganna. Stjórnin boðar til almennra funda bankamanna, ef mikilvæg mál, sem stéttina varða, eru á dag- skrá. Hún lætur gera skýrslur um það, sem gerist á sambandsþingum, og skulu þær birtar í Banka- blaðinu. Sambandsstjórninni er heimilt að skipa nefndir sér til aðstoðar og til þess að vinna að sérstökum málum. V. FJÁRMÁL. 11. gr. Árlegan skatt aðildarfélaga til sambandsins skal ákveða á sambandsþingi fyrir tvö ár í senn. Ofé- lagsbundnir einstaklingar, sbr. 4. gr., greiði skatt á sama hátt til sambandsins. Skuldi félag skatt fyrir meira en eitt ár, missir það réttindi sín í sambandinu. Félögunum ber að senda sambands- stjórninni skrá yfir meðlimi sína 1. janúar ár hvert og skulu greiða skattinn samkvæmt henni fyrir 31. desember sama ár. 12. gr. Reikningsár sambandsins miðast við febrúar- lok ár hvert. Reikningsskil skulu gerð árlega. Reikningar skulu yfirfarnir og eignir kannaðar af endurskoð- endum sambandsins. VI. KJARANEFND. 13. gr. Eftir hvert reglulegt sambandsþing er stjórn- inni heimilt að kjósa 3 menn, sem ásamt for- manni sambandsstjórnar og starfsmanni sambands- ins mynda kjaranefnd. Verkefni nefndarinnar eru: a) Að fylgjast með þróuninni á hinum al- menna launamarkaði. b) Safna tillögum frá aðildarfélögunum um breytingar á launareglugerð. c) Undirbúa launasamninga og leggja tillögur fyrir sambandsstjórn. d) Sitja, ásamt sambandsstjórn, samningafundi með Samvinnunefnd bankanna. 14. gr. Sambandið er aðili að Norræna bankamanna- sambandinu — N.B.U. — og tekur þátt í störfum þess samkvæmt gildandi lögum þess á hverjum tfma. VIII. BANKABLAÐIÐ. 15. gr. Málgagn sambandsins er „Bankablaðið". Sam- bandsstjórn tilnefnir þriggja manna blaðnefnd til tveggja ára í senn og er verkefni hennar að út- vega efni og stuðla að sem beztri fjárhagslegri af- komu blaðsins. Stefnt skal að því að blaðið komi út ársfjórð- ungslega. Æskilegt er að ritstjóri sé starfsmaður sam- bandsins. Starfsmaður annist fjárreiður blaðsins og skulu reikningar þess kannaðir af endurskoðendum sam- bandsins og lagðir fyrir sambandsþing til sam- þykktar. IX. HEIÐURSMERKI. 16. gr. Heiðursmerki S.I.B. er merki sambandsins úr gulli. Heiðursmerki er veitt íslenzkum og er- 12 BAN KABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.