Bankablaðið - 01.12.1971, Side 16
og bankafólki gefinn kostur á að sækja
um þær.
Tryggt verði, að ekki sé gengið fram hjá
hæfu bankastarfsfólki við skipan í þessi emb-
ætti sem og önnur störf innan bankanna.
6. Þing S.Í.B. haldið 19.—21. apríl felur
stjórn S.I.B. að semja um hóptryggingar fyrir
bankastarfsfólk við stjórnendur bankanna.
Telur þingið eðlilegt, að bankastarfsfólk taki
þátt í þeim kostnaði sem af þessu leiðir. Þó
skal hlutdeild starfsfólks aldrei vera stærri
hundraðshluti af heildariðgjöldum vegna hóp-
trygginganna en nú er af iðgjöldum eftir-
launasjóða ríkisbankanna.
Þingið bendir á nauðsyn þess að áfram
verði unnið að því að koma á atvinnuleysis-
tryggingum fyrir bankafólk.
7. Þingið ítrekar fyrra álit sitt um, að all-
ir íslenzkir bankamenn njóti sambærilegra
eftirlaunaréttinda og leggur áherzlu á að
þeim samningum, sem nú er unnið að í þá
átt, verði lokið hið fyrsta.
9. Þingið telur nauðsynlegt að stefnt sé
að því að auka starfsemi skrifstofu sam-
bandsins, ráðinn verði starfsmaður, er hafi
framkvæmdastjórn á vegum sambandsins að
aðalstarfi, meðal annars sjái um erindrekstur
á vegum sambandsins, og telur eðlilegt, að
skrifstofu sambandsins verði settar nánari
reglur um verksvið og starfsemi.
10. Þing Sambands ísl. bankamanna hald-
ið 19-—21. apríl 1971 hvetur til þess, að
upp verði tekið meira og nánara samstarf
milli einstakra launþegasamtaka en verið
hefur til þessa. Stefnt skuli að því að koma
á fót sameiginlegri hagstofnun fyrir laun-
þegasamtökin og telur þingið að rekstur
slíkrar stofnunar sé í þágu bæði launþega
og atvinnurekenda.
11. Þing Sambands ísl. bankamanna hald-
ið 19.—21. apríl 1971 felur stjórn sam-
bandsins að kanna, hvort framkvæmd ný-
samþykktar launareglugerðar er í þeim anda,
sem hugsað var við undirritun reglugerðar-
innar og koma þegar fram þeim leiðrétting-
um, sem þurfa þykir. I þessu sambandi er
sérstaklega bent á eftirtalin atriði.
Reglur þær, sem fylgt hefur verið í bönk-
unum um skipan starfsfólks í þrep hvers
launaflokks.
Sameining sú, sem bankarnir framkvæmdu
á 46 þrepum gamla launakerfisins og 37
þrepum nýja launakerfisins.
Utreikningar á áfangagreiðslum launa-
hækkananna.
12. Þingið skorar á stjórn S.I.B. að vinna
að því, í samvinnu við skólanefnd Banka-
mannaskólans og bankastjórnir, að fastmóta
framtíðarstefnu Bankamannaskólans þannig,
að hann veiti bankamönnum fullkomna fag-
lega menntun í hinum ýmsu bankastörfum.
13. Þingið ítrekar þá áskorun til stjórnar
S.Í.B. frá síðasta sambandsþingi, að hún
kanni starfsaldur karla og kvenna í öllum
bönkum í hverjum launaflokki, með sér-
stöku tilliti til framkvæmdar hinnar nýju
launareglugerðar og að lögum um launa-
jöfnuð karla og kvenna frá 1961 sé fram-
fylgt fullkomlega í bönkunum.
Aðrar tillögur:
„Sambandsþing 1971 samþykkir að ár-
gjald til sambandsins fyrir árið 1971 verði
kr. 750,00. Ennfremur að árgjald fyrir 1972
verði kr. 1000,00."
„Þing S.Í.B. haldið 19.—21. apríl fagnar
heimkomu handritanna af heilum hug."
14 BANKABLAÐIÐ