Bankablaðið - 01.12.1971, Síða 20
-f- Alfred Netland
Er ikke hver som har kjent dem
mer rik enn de döde var —
for menn har hatt dem som venner
og harn har hatt dem til far.
Nordahl Grieg (De beste).
Með Alfred Netland er fallinn frá einn
dáðasti forustumaður bankamanna á Norð-
urlöndum.
Alfred Netland lagði fram krafta sína í
þágu félaga sinna í Norska bankamanna-
sambandinu um langt árabil. Hin síðari ár
var hann formaður þeirra samtaka og jafn-
framt stjórnarmaður Norræna bankamanna-
sambandsins.
í vor stjórnaði Alfred Netland landsfundi
Norska bankamannasambandsins, helsjúkur,
en með þeirri reisn og virðuleika, sem ætíð
hafði einkennt hann. I lok landsfundarins
baðst hann undan endurkjöri og mælti jafn-
framt með 'eftirmanni sínum. Allir, sem sátu
landsfundinn, vissu það gjörla, án þess gætti
nokkurs staðar, að Alfred Netland myndi
ekki eiga afturkvæmt til stjórnarstarfa, held-
ur var hann að kveðja félaga sína fyrir fullt
og allt, — en hann gerði það eins og sá,
er á langan dag framundan. Það verður
mönnum ógleymanlegt.
Landsfundurinn var haldinn í Kristian-
sand, heimabæ Alfreds Netlands. Það var
táknrænt, að hann, sem var mikill framá-
maður í bæjarfélaginu, skyldi einmitt hér
stjórna landsfundi Norska bankamannasam-
bandsins í síðasta sinni. Heiðríkja vorsins
ríkti hið ytra. Andi samstarfs og einhugar
ríkti innan dyra undir ákveðinni stjórn Al-
freds Netlands, sem mótuð var af mildi hans
og hlýju.
Islenzkir bankamenn eiga þessum ágæta
Norðmanni mikið og margt að þakka. Aífred
Netland var alltaf reiðubúinn til að rétta
okkur hjálparhönd og af góðum skimingi
mætti hann okkur á miðri leið.
Það skipti ávallt miklu máli um úrslit og
ákvarðanir, hvað Alfred Netland lagði til
mála, — slík voru áhrif hans. Menn virtust
taka meira tillit til hans, en fl'estra annarra.
Framkoma hans var þannig, að allir fengu
það álit á honum, að hann væri maður traust-
ur og gæddur mikilsverðum hæfileikum.
Samskipti við hann urðu því eftirsóknar-
verðari, sem þau urðu nánari.
Það leyndi sér ekki, að Alfred Netland
var til forustu fallinn og hann sýndi það i
öllu því, er hann tók sér fyrir hendur. Hann
naut mikillar virðingar og trausts um öll
Norðurlönd, og nú, þegar hann er horfinn
fyrir aldur fram, er hann harmdauði öllum,
sem höfðu af honum einhver kynni.
Deyr fé,
deyja frændr,
deyr sjalfr et sama;
en orðstírr
deyr aldrigi
hveims sér góðan getr.
Guðjón Halldórsson.
18 BANKABLAÐIÐ