Bankablaðið - 01.12.1971, Qupperneq 22
starfa við þessa götu tveir bankar, Samvinnu-
banki Islands h.f. og Verzlunarbanki Islands
h.f., svo að nafn götunnar heldur áfram að
vera réttnefni). Þremur árum síðar, árið 1889
flymr Landsbankinn í eigin húsakynni í nýju
og vönduðu húsi, er stóð á horni Austur-
strætis og Pósthússtrætis. Húsið var byggt
úr steini, en innviðir úr timbri eftir teikningu
dansks húsameistara að nafni Thuren. I brun-
anum mikla, 25. apríl 1915, brann hús Lands-
bankans, en öruggar geymslur forðuðu því,
að mikilvægustu skjöl hans og fjármunir
yrðu eldinum að bráð.
Starfsemi Landsbankans var á hrakhólum
nokkur ár eftir brunann, var fyrst í þröngu
húsnæði í Pósthúsinu og síðar í húsi Nathans
og Olsen, sem nú er Reykjavíkurapótek.
A árinu 1924 var tekið í notkun nýtt
bankahús, sem byggt var á rústum þess
gamla, og verið hafa höfuðstöðvar bankans
síðan. Þetta hús teiknaði Guðjón Samúels-
son, húsameistari, í sama stíl og hið eldra, en
miklum mun stærra. Ber það enn með sér,
að vel var til þess vandað og talsverður íburð-
ur í innréttingum, svo sem tréskurður og
annað því um líkt, ber enn ríkulegan vott
um. Þessi húsbygging hefur og að geyma
merkileg veggmálverk eftir Jóhannes Kjarval
og Jón Stefánsson, sem reynt verður að varð-
veita með bezta móti.
Landsbankinn keypti Ingólfshvol árið
1928 og hóf þar starfsemi 1932. Sex árum
síðar byggir bankinn tengibyggingu milli
keypti Landsbankinn Edinborgarhúsið, Hafn-
arstræti 10—12. Nú hefur því verið breytt
aðallega að innan og Ingólfshvoll brotinn
niður, en byggður upp að nýju, þannig að
öll þessi þrjú hús eru nú sambyggð innan
sem utan. Þar með hefur Landsbankinn auk-
ið og þó sérstaklega endurskipulagt húsakost
sinn að verulegu leyti frá rótum.
Aukning bankastarfseminnar hefur verið
mikil á síðustu áratugum og hefur að sjálf-
sögðu fylgt auknum og breyttum verkefnum
innan þjóðfélagsins. Það hefur orsakað sí-
vaxandi þörf fyrir meira húsnæði og betri
starfsskilyrði starfsfólksins. Hvað Landsbank-
ann snertir var það og Seðlabankinn, sem í
fyrstu var innan Landsbankans og síðar
sjálfstæð stofnun, árið 1961, er einnig jók
á húsnæðisþörfina, en þessir tveir höfuð-
bankar landsins hafa frá því fyrsta verið í
sambýli og eru enn.
Til nokkurrar glöggvunar á þeirri öru
þróun, sem orðið hefur í bankastarfseminni
á undanförnum árum, má benda á að færslu-
fjöldi í sparisjóðsdeildum Landsbankans á
Reykjavíkursvæðinu var árið 1960 260 þús-
und færslur. Tíu árum síðar eða árið 1970
var færslufjöldinn 1565 þúsund færslur, þar
af voru ávísanir ca. 70%.
I hinum nýja afgreiðslusal bankans er
veggmynd (mosaik) eftir Nínu Sveinsdóttur
og mun vera eitt síðasta listaverk hinnar
látnu listakonu. Efni myndarinnar er sótt í
Eglu og er mikið og gott verk.
Bankablaðið árnar Landsbanka Islands,
stjórn hans og starfsmönnum, allra heilla í
tilefni þessara þáttaskila í sögu hans.
G. H.
20 BANKABLAÐIÐ