Bankablaðið - 01.12.1971, Side 27

Bankablaðið - 01.12.1971, Side 27
Má segja, að hér hafi í rauninni verið um beina atvinnubyltingu að ræða og megum við nú á þessum merkisdegi bankans gleðj- ast yfir þeim veigamikla þætti, sem þessi gamla og virðulega stofnun okkar átti í þess- ari gagngeru breytingu á högum allrar þjóð- arinnar. Þannig jukust umsvif bankans jafnt og þétt og þar kom, að ekki varð hjá því komizt að ráða bankastjóra, sem hefði stjórn bank- ans að aðalstarfi. Var Tryggvi Gunnarsson, hinn kunni athafnamaður ráðinn í það starf árið 1893. Gerðist hann brátt umsvifamikill í starfi og stóð um hann mikill styrr, svo sem kunnugt er. Hann hófst þegar handa um byggingu nýs bankahúss, enda brýn þörf sakir mikilla og sívaxandi viðskipta. Var það hús tekið í notkun árið 1899, en bygg- ingarsögu Landsbanka Islands verða gerð skil hér á eftir. Þótt vegur og áhrif Landsbankans færi þannig vaxandi með ári hverju hafa vitanlega skipzt á skin og skúrir, og enginn skyldi halda, að starfsemi hans hafi þróazt sjálf- krafa og fyrirhafnarlaust og án átaka. Því fer víðs fjarri. Kom jafnvel um eitt skeið til orða að gera hann upp og leggja hann undir Islandsbanka, sem stofnaður var af erlandum fjármálamönnum skömmu eftir Veggmynd (mósaík) eftir Nínu Sveinsdóttur í afgreiðslusal Landsbankans. BANKABLAÐIÐ 25

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.