Bankablaðið - 01.12.1971, Side 28

Bankablaðið - 01.12.1971, Side 28
LJr afgreiðslusal Landsbankans. síðustu aldamót. Tókst Magnúsi Stephensen landshöfðingja á síðustu stundu að bjarga því máli á Alþingi 1901, þegar rætt var um og ákveðið að stofna hinn nýja banka. Eg hef nú aðeins drepið á örfá atriði varð- andi aðdraganda, stofnun og upphaf að starf- semi Landsbanka Islands, en það er ekki ætl- un mín að gera þróunarsögu bankans þau 85 ár, sem hann hefur starfað, nein skil. Það er öllum ljóst, sem til þekkja, að bank- inn hefur sigrazt á öllum þeim örðugleikum, sem á vegi hans hafa verið. Hann hefur reynzt lífseigur og ávallt megnað að styðja atvinnu- og viðskiptalíf landsmanna með þeim hætti, sem raun ber vitni. Þetta hefur getað gerzt vegna þess, að bankinn hefur notið vaxandi trausts utan lands sem innan og starfsemi hans því sí- fellt farið vaxandi. Þó hefur vöxtur hans verið hvað mestur síðustu tvo til þrjá ára- tugina. Engin tök eru á að gera nokkra við- hlítandi grein fyrir þeirri þróun hér á þess- um stað, enda mun flestum yðar vera kunn- ugt um það í höfuðdráttum. Þó vil ég geta þess. að síðasta aðaltala jafnaðarreiknings við árslok 1970, var hvorki meira né minna en 7,7 milljarðar króna. En það, sem ef til vill gefur enn betri hugmynd um vöxt starf- seminnar í heild er sjálfur afgreiðslufjöldinn. Samkvæmt upplýsingum, sem ég hef undir höndum, var færslufjöldi í sparisjóðsdeild á öllu landinu árið 1940 108 þúsund, en 1960 260 þúsund. Árið 1970 var færslufjöldi á Reykjavíkursvæðinu einu saman kominn upp í 1565 þúsund. Á hlaupareikningum var færslufjöldinn 1940 77 þúsund og 1960 266 þúsund. Á Reykjavíkursvæðinu var þessi tala komin upp í 900 þúsund árið 1970. Inn- heimtur voru á öllu landinu um 7 þúsund árið 1940 en 27 þúsund 1960. Þær voru á Reykjavíkursvæðinu 104 þúsund árið 1970, svo nokkrar tölur séu nefndar. Þessi gífurlega aukning hefur vitanlega fyrst og fremst mætt á starfsliði bankans, þótt því hafi að sjálfsögðu fjölgað, er það ekki í samræmi við það. Kemur þar til auk- 26 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.