Bankablaðið - 01.12.1971, Side 33
Ræða Baldvins Jónssonar
við opnun útibús Landsbanka íslands á Hornafirði
Virðulega samkoma.
Um þessar mundir eru 85 ár liðin síðan
Landsbanki Islands tók til starfa. Hóf hann
starfsemi sína hinn 1. júlí 1886 í litlum
húsakynnum við Bakarastíg, sem síðar var
við hann kenndur og nefndur Bankastræti.
Svo sem kunnugt er var Landsbanki Is-
lands stofnaður með lögum nr. 14 frá 18.
september 1885. Atti stofnun hans alllang-
an aðdraganda og urðu miklar umræður á
Alþingi og á öðrum opinberum vettvangi
áður en unnt reyndist að koma bankamálinu
í örugga höfn. Sýndist sitt hverjum um hvaða
fyrirkomulag hentaði okkur bezt varðandi
framtíðarskipan íslenzkra peninga- og banka-
mála. Samkvæmt fyrrnefndum lögum var
það talið eitt af höfuðverkefnum hins nýja
banka að stuðla að og greiða fyrir peninga-
viðskiptum um land allt, meðal annars með
því að koma á stofn bankaútibúum í öllum
fjórðungum landsins. I 9. grein laganna um
stofnun Landsbankans segir svo um þetta
atriði: „Bankinn skal, svo fljótt sem auðið
er, setja á stofn aukabanka eða framkvæmda-
stofur fyrir utan Reykjavík, einkum á Akur-
eyri, Isafirði og Seyðisfirði." Bankinn var því
engan veginn bundinn við Reykjavík eina,
heldur var honum ætlað að þjóna landsmönn-
um öllum með því að draga til sín og hag-
nýta það fjármagn, sem menn lágu með
ónotað í handraðanum og gátu ekki ávaxtað
vegna vöntunar á traustri og áreiðanlegri
f j ármiðlunarstof nun.
Ekki þótti fært að sinna þessu verkefni
fyrstu árin, og mun það fyrst og fremst hafa
stafað af fjárskorti, enda augljóst, að aðal-
bankinn í Reykjavík þurfti að safna kröft-
um, áður en hann gæti hafið starfsemi úti
um allt land svo að gagni mætti koma. Var
málinu þó haldið vakandi og fyrsta útibúið
stofnað á Akureyri árið 1902 og hið næsta á
ísafirði árið 1904. Ekki þótti fært að stofna
útibú á Austurlandi að sinni, enda mörg verk-
efni meira aðkallandi. Heimildir eru þó til
fyrir því, að bankinn hafði fullan hug á að
stofna útibú hér eystra, þótt ekki yrði úr
framkvæmdum, fyrst og fremst vegna fjár-
skorts.
Með stofnun Islandsbanka árið 1903
BANKABLAÐIÐ 31