Bankablaðið - 01.12.1971, Síða 42

Bankablaðið - 01.12.1971, Síða 42
SVERRIR KRISTJÁNSSON: Þorraræða í Utvegsbankanum 1971 Dömur mínar og herrar. Mér er það mikill heiður og ánægja að eiga kost á að sitja svo ágætt hóf, þar sem risna og mannlegt viðmót eiga samleið. Skáld okkar, sem lifðu þá löngu liðnu hamingju- daga, er hægt var að yrkja ættjarðarljóð án þess að roðna af blygðun, minntust ósjaldan á gróandi þjóðlíf og raunar líka þverrandi tár, en ekki þurfum við sem nú erum ofar moldu, hvort sem við erum stödd í lífsblóm- anum eða nálgumst gröfina, að kvarta yfir gróskuleysi þjóðlífsins aukin heldur banka- lífsins. Þó eru til skæðar tungur í landi voru, sem tala um ofvöxt bankalífsins. Mér finnst þetta nu dálítið ómaklegt. Því ég fæ ekki betur séð en að allar stéttir á Islandi vilji eiga sinn eigin banka: bændur, verzlunar- menn, iðnaðarmenn, samvinnumenn, alþýðu- menn og útvegsmenn, en við þá síðast nefndu er sá banki eiginlega kenndur, sem hefur gert sér dagamun í kvöld á mörkum þorra og góu. Bankarnir eru sem sagt jafnmargir helztu stéttum landsins, og þá eru það spari- sjóðirnir, sem vilja einnig feta þrep metorða- stigans og verða bankar. Alls konar sam- tök í landinu, veraldleg og geistleg, eiga sér sparisjóði, eins og til að mynda Hvítasunnu- söfnuðurinn, sem á sparisjóðinn Pundið. Kannski verður Pundið einhvern tíma banki, enda fordæmið fyrir: mig minnir ekki betur en að til sé Banki Heilags anda í einu landi kaþólsks siðar. Oft hefur það flögrað að mér hvað það væri gaman að eignast Heilagan anda að lánardrottni og mega selja honum smálítinn víxil. Svo er sagt um Kelta hina fornu, þá er byggðu Frakkland forðum tíð, að þeir hafi trúað svo sterkt á annað líf, að lánardrottinn sagði við skuldunaut sinn: æ, blessaður vertu ekki að gera þér neina rellu út af þessu lítilræði, þú mátt borga vexti og afborganir þegar við hittumst hinum megin. Einu sinni sagði ég Sigurði heitnum Jónassyni, fyrrum forstjóra tóbakseinkasölunnar, frá þessu og spurði hann hvort hann vildi ekki lána mér svo sem eina milljón upp á þessi býti. Engan mann vissi ég eins sannfærðan um framhalds- lífið eins og Sigurð Jónasson. En þetta var í eina skiptið sem ég sá læðast að honum efa um annað líf og færðist kurteislega und- an að ganga að leikreglum hins keltneska viðskiptalífs. En oft hefur mér dottið í hug, hve lífið gæti nú orðið indælt, ef banka- stjórar okkar tækju trú hinna fornu Kelta og keyptu af manni víxlana, en greiðslufrestur- inn eilífðin ein. Og þið getið rétt ímyndað ykkur, hversu bankastarfsemin okkar yrði öll greiðari, við- skiptalífið blómlegra og einfaldara. Eg skal að vísu játa, að ein stétt yrði atvinnulaus í landinu: lögfræðingar bankanna. Þeir yrðu sennilega að lifa á atvinnuleysisstyrk meðan þeir væru í þessari jarðnesku tilveru, en hugsið ykkur bara bísnissinn hinum megin. Mér virðist það vera málvenja á Islandi og raunar víðar, að skipta bönkum í tvennt: bankastarfsmenn og bankastjóra, og er þar með ekki verið að gefa illyrmislega í skyn, að hinir síðarnefndu starfi ekki. Þetta er ekk- ert annað en hagræðing íslenzkrar tungu þegar hún þarf að tjá ósköp einfalda verka- skiptingu. Persónulega þekki ég heldur fáa 40 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.