Bankablaðið - 01.12.1971, Síða 52

Bankablaðið - 01.12.1971, Síða 52
Norræni bankinn í London Scandinavian Bank Ltd. í London hóf starfsemi sína fyrir tveimur árum síðan, i júní 1969. Bankinn er skrásettur í Bretlandi og starfar samkvæmt brezkum lögum, en eigendur hans eru sjö viðskiptabankar á Norð- urlöndum. Þessir bankar eru: Skandinaviska Banken og Skánska Banken í Svíþjóð, Den Danske Landmandsbank og Den Danske Provinsbank í Danmörku, Bergens Privat- bank í Noregi, Nordiska Föreningsbanken í Finnlandi og Landsbanki Islands. Bankinn annast alla venjulega bankastarf- semi en leggur sérstaka áherzlu á að greiða fyrir viðskiptum á milli Norðurlanda og Bretlands. Þá vinnur hann að því að auð- velda bönkum og fyrirtækjum á Norðurlönd- um aðgang að þeim alþjóðlega fjármagns- markaði, sem hefur miðstöð sína í Lundún- um. Starfsemi bankans hefur aukizt jafnt og þétt síðan hann var stofnaður. Er almennt álitið, að árangur af starfseminni hafi verið með ágæmm, og nýtur bankinn þegar mikils álits meðal annarra banka og fjármálastofn- ana. Vegna mikillar aukningar starfseminn- ar hefur þegar verið ákveðið að auka hluta- fé bankans úr £3 millj. í £5 millj. Bankaráð Scandinavian Bank Ltd. heldur yfirleitt fundi annan hvorn mánuð í Lund- únum. Einu sinni á ári eru þessir fundir þó haldnir í einhverju heimalandi aðildarbank- anna. I þetta skipti er fundurinn haldinn í húsakynnum Landsbankans í Reykjavík. Formaður bankaráðsins hefur frá upphafi verið L. E. Thunholm, aðalbankastjóri Skandinaivska Banken í Stokkhólmi. Fyrsti bankastjóri bankans, og sá sem mestan þátt átti í, að hann komst á fót, var Svíinn Sven G. Malmberg. Hann hefur nú horfið til fyrri starfa sinna hjá Skandinaviska Banken í Stokkhólmi, en við bankastjórastarfinu hefur tekið annar Svíi, J. Staffan Gadd, sem áður var aðstoðarbankastjóri. Við bankann starfa, auk allmargra Breta, menn frá öllum Norð- urlöndunum, þ. á m. einn Islendingur, Barði Arnason, frá aðalskrifstofu Landsbankans. Bækistöðvar Scandinavian Bank Ltd. eru í miðju fjármálahverfi Lundúna (City) í svo- kallaðri P. og O. byggingu í Leadenhall Street. Það var Svanbjörn Frímannsson, núver- andi Seðlabankastjóri, sem ásamt Baldvin Jónssyni, bankaráðsformanni Landsbankans, beitti sér fyrir þátttöku Landsbankans í þessu norræna samstarfi. Er sú þátttaka ekki sízt mikilvæg með tilliti til þeirra auknu viðskipta við Norðurlönd og Bretland, sem leiða af aðild Islands að Fríverzlunarsamtökum Evr- ópu (EFTA) og auknum alþjóðaviðskiptum landsins yfirleitt. Svanbjörn hefur einnig verið fulltrúi Landsbankans í bankaráði Scan- dinavian Bank Ltd. 50 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.