Jazzblaðið - 01.12.1950, Blaðsíða 40
• t(r eiHu í annaí •
Hilmar Skagfield hefur sent blaðinu frétta-
bréf frá U. S. A., sem vegna rúmleysis verður
ekki hægt að birta fyrr en í næsta hefti. —
Hann hefur komist i kynni við nokkra hljóð-
færaleikara þar sem hann er, í Florida, og er
Johnny Erikson Philips, einn þeirra. Hilmar
hefur fengið Philips til að gangast inn á, að
skrifa nokkrar útsetningar, er heppilegar væru
fyrir hljómsveitir hér á landi, og er einmitt
J. E. Philipps hefur lokið prófi í hljómsveitar-
auglýsing um þetta á öðrum staö í blaðinu.
stjórn frá Tónlistarháskólanum í Tallahassee
og hefur einnig kennararéttindi í hljómfræði
við hvaða háskóla sem vera skal 1 U. S. A. —
Hann hefur leikið með nokkrum þekktum
hljómsveitum og leikur hann aðallega á guitar
og bassa, en leikur auk þess á fleiri hljóð-
færi. Hann er aðeins 22 ára, en er talinn mjög
slunginn útsetjari.
Karl Jónatansson er fyrir nokkru fluttur til
Keflavíkur. Hefði mátt ætla, að hann reyndi að
koma einhverju nútíma sniði á hljómsveit
samkomuhússins, en hann er með hana. Þetta
hefur samt ekki orðið eftir því sem blaðinu
hefur verið skrifað. Á „restrasjónum" sendir
hann alla í hljómsveitinni heim, en ræður
annan harmonikuleikara til að leika með sér.
—Er ekki tromma og harmonika skömminni til
skárri, Karl?
Sjómaður hefur skrifað blaðinu bréf, þar
sem hann þakkar fyrir fróðlegt og skemmtilegt
blað. En hann segist hafa rekist á eintak af
því fyrir nokkrum mánuðum inn á veitinga-
stofu vestur í Canada, en hvernig það hefur
verið þangað komið, langar hann til að vita
.... við erum engu nær.
Örn Clausen hefur sagt okkur, að hann hafi
kynnzt nokkúð söngkvartettinum „Delta
Rhythm Boys“, sem skrifað var um í blaðinu
í sumar. Þeir sáu hann á veitingahúsi i Kaup-
mannahöfn og báðu hann að þýða fyrir sig
greinina um kvartettinn, þvi að þeir voru
með eintak af blaðinu. Öm varð við ósk þeirra
og létu þeir vel yfir greininni.
Grein sú, er barst í sambandi við verðlauna-
greinarsamkeppni blaðsins og til stóð aö birta
i þessu blaði kemur i næsta blaði, þar sem ekki
var meira rúm í blaðinu. Ennfremur verður þá
grein eftir fréttaritara blaðsins í Svíþjóð,
Benny Aaslund, um hljómsveit Carl-Henrik
Norins.
Ttie Life of Glenn Miller heitir bók,
sem hinn kunni jazzgagnrýnandi Leon-
ard Feather hefur nýlega lokið við.
Eins og nafnið bendir til er þetta æfi-
saga hins kunna hljómsveitarstjóra
Glenn Miller. Hann fórst í flugslysi á
stríðsárunum.
Nokkrar
úrvals jazzplöfur
(Framhald listanna í 5.—6. tbl. og 9. tbl.
1948 og 7.-8. tbl. 1949):
Jay McShann’s Orchestra: Sepian bounce,
Lonely boy blues (1942)’.
Duke Ellington’s Orchestra: Johnny come
lately, Main stem (1942).
Mel Powell’s Orchestra: The world is wait-
ing, Mood at the twilight (1942).
The Capitol Jazz Men: Casanova’s lament;
Solitude (1943).
The Art Tatum Trio: I know that you know,
Body and soul (1944).
Lester Young’s Quartet: I never knew; Just
you, just me (1944).
Edmond Hall’s All-Sar Quintett: Blue in-
terval, Seein’ Red (1944).
Cootie Williams Orchestra: Things aint
what; Red blues (1944).
Charlie Shavers’ Orchestra: Mountain air,
Rosetta (1944).
Coleman Hawkins’ Orchestra: It’s the talk
of the town, Stuffy (1945).
Dizzy Gillespie’s Orchestra: Hot hous, Salt
peanuts (1945).
Bill Harris’ Orchestra: Cross country, Mean
to me (1945).
Stan Kenton’s Orchestra: Artistry jump,
Just a-sittin.... (1945).
The International Jazz Men: You can de-
pend on me, Stormy weather (1945).
Eddie Heywood’s Orchestra: Blue, Lou,
Piease, don’t talk about me (1945).
The Erroll Garner Trio: Laura, Somebodys
loves me (1945).
Boyd Raeburn’s Orchestra: Tonsilectomy,
Elegy Movement from „Jitterbug Suite” (’46).