Jazzblaðið - 01.12.1950, Page 40

Jazzblaðið - 01.12.1950, Page 40
• t(r eiHu í annaí • Hilmar Skagfield hefur sent blaðinu frétta- bréf frá U. S. A., sem vegna rúmleysis verður ekki hægt að birta fyrr en í næsta hefti. — Hann hefur komist i kynni við nokkra hljóð- færaleikara þar sem hann er, í Florida, og er Johnny Erikson Philips, einn þeirra. Hilmar hefur fengið Philips til að gangast inn á, að skrifa nokkrar útsetningar, er heppilegar væru fyrir hljómsveitir hér á landi, og er einmitt J. E. Philipps hefur lokið prófi í hljómsveitar- auglýsing um þetta á öðrum staö í blaðinu. stjórn frá Tónlistarháskólanum í Tallahassee og hefur einnig kennararéttindi í hljómfræði við hvaða háskóla sem vera skal 1 U. S. A. — Hann hefur leikið með nokkrum þekktum hljómsveitum og leikur hann aðallega á guitar og bassa, en leikur auk þess á fleiri hljóð- færi. Hann er aðeins 22 ára, en er talinn mjög slunginn útsetjari. Karl Jónatansson er fyrir nokkru fluttur til Keflavíkur. Hefði mátt ætla, að hann reyndi að koma einhverju nútíma sniði á hljómsveit samkomuhússins, en hann er með hana. Þetta hefur samt ekki orðið eftir því sem blaðinu hefur verið skrifað. Á „restrasjónum" sendir hann alla í hljómsveitinni heim, en ræður annan harmonikuleikara til að leika með sér. —Er ekki tromma og harmonika skömminni til skárri, Karl? Sjómaður hefur skrifað blaðinu bréf, þar sem hann þakkar fyrir fróðlegt og skemmtilegt blað. En hann segist hafa rekist á eintak af því fyrir nokkrum mánuðum inn á veitinga- stofu vestur í Canada, en hvernig það hefur verið þangað komið, langar hann til að vita .... við erum engu nær. Örn Clausen hefur sagt okkur, að hann hafi kynnzt nokkúð söngkvartettinum „Delta Rhythm Boys“, sem skrifað var um í blaðinu í sumar. Þeir sáu hann á veitingahúsi i Kaup- mannahöfn og báðu hann að þýða fyrir sig greinina um kvartettinn, þvi að þeir voru með eintak af blaðinu. Öm varð við ósk þeirra og létu þeir vel yfir greininni. Grein sú, er barst í sambandi við verðlauna- greinarsamkeppni blaðsins og til stóð aö birta i þessu blaði kemur i næsta blaði, þar sem ekki var meira rúm í blaðinu. Ennfremur verður þá grein eftir fréttaritara blaðsins í Svíþjóð, Benny Aaslund, um hljómsveit Carl-Henrik Norins. Ttie Life of Glenn Miller heitir bók, sem hinn kunni jazzgagnrýnandi Leon- ard Feather hefur nýlega lokið við. Eins og nafnið bendir til er þetta æfi- saga hins kunna hljómsveitarstjóra Glenn Miller. Hann fórst í flugslysi á stríðsárunum. Nokkrar úrvals jazzplöfur (Framhald listanna í 5.—6. tbl. og 9. tbl. 1948 og 7.-8. tbl. 1949): Jay McShann’s Orchestra: Sepian bounce, Lonely boy blues (1942)’. Duke Ellington’s Orchestra: Johnny come lately, Main stem (1942). Mel Powell’s Orchestra: The world is wait- ing, Mood at the twilight (1942). The Capitol Jazz Men: Casanova’s lament; Solitude (1943). The Art Tatum Trio: I know that you know, Body and soul (1944). Lester Young’s Quartet: I never knew; Just you, just me (1944). Edmond Hall’s All-Sar Quintett: Blue in- terval, Seein’ Red (1944). Cootie Williams Orchestra: Things aint what; Red blues (1944). Charlie Shavers’ Orchestra: Mountain air, Rosetta (1944). Coleman Hawkins’ Orchestra: It’s the talk of the town, Stuffy (1945). Dizzy Gillespie’s Orchestra: Hot hous, Salt peanuts (1945). Bill Harris’ Orchestra: Cross country, Mean to me (1945). Stan Kenton’s Orchestra: Artistry jump, Just a-sittin.... (1945). The International Jazz Men: You can de- pend on me, Stormy weather (1945). Eddie Heywood’s Orchestra: Blue, Lou, Piease, don’t talk about me (1945). The Erroll Garner Trio: Laura, Somebodys loves me (1945). Boyd Raeburn’s Orchestra: Tonsilectomy, Elegy Movement from „Jitterbug Suite” (’46).

x

Jazzblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.