Stundin - 01.08.1940, Page 32

Stundin - 01.08.1940, Page 32
32 STUNDIN KÖKOSEYJAR eða Kerlingaeyjar öðru nafni eru 20 smáeyjar í Indlandshafi 600 sjómílur suðvestur af suðurodda Sumatra. Þær raða sér í hring utan um grunnan vog, sem hvergi er dýpri en 10 metrar og þomar upp að hálfu leyti um fjömna. Þetta eru kór- aleyjar, marflatar með kalkjarðvegi, vöxnum kókospálmaskógi. Þær liggja á 12° suðlægrar breiddar, svo loftslagið er hið ókjósanlegasta, aldrei kalt í veðri, en hitinn sjaldnast úr hófi fram. Englendingurinn Kuling fann þessar eyjar árið 1609. En snemma á 19. öld settist þar að brezkur skipstjóri, Ross að nafni og tókst honum að gera eyjaskeggja sér undirgefna. Þeir eru af Malajakyni og lifa á kókosrækt og fiskiveiðum. Síðan hélzt konungdómur þar Kókoseyjar og á eyjunum í ætt Ross, þótt konungdómur sá sé síðan 1884, ekki annað en leppmennska, því þá köstuðu Englendingar endanlega eign sinni á eyjamar. Þama er nefnilega þýðing- armikil stöð í sæsímakerfi Breta í Indlands- hafi. Um Kókoseyjar liggur síminn frá Kol- ombo á Ceylon til Freemantle á vesturströnd Ástraliu-meginlandsins. Allstór hópur síma- starfsmanna býr því á eyjunum og eru þeir brezkir þegnar. En yfir rúmlega 1000 Malaj- um ríkir núverandi konungur Clunies Ross al- gerlega einvaldur. Hann er af Malajum kom- inn í móðurætt, en gekk í skóla á Englandi og bregður sér oft úr fásinninu til Evrópu og heilsar þá náttúrlega upp á Bretakonung, lénsdrottinn sinn, í leiðinni. Kókoseyjakonungur stjómar þegnum sínum með forsjá og skörungsskap. Afkoma þeirra er almennt sæmileg. Eyjamar gefa af sér ;2ó0 smálestir af „Copra” á ári. Híbýli fólks- ins eru snotur og sæmilega þrifaieg og heilsu- far hið bezta. Vilji Kókoseyja-Malajar ferðast út í heim og sjá sig um, er þeim það heimilt, en kóngur setur hinsvegar það skilyrði að þeir, sem það gera, komi aldrei aftur. Hann kærir sig ekkert um að verið sé að flytja til eyjanna þjóðfélagshugmyndir frá öðrum lönd- um. Sjálfur telur hann sig vita bezt, hvað eyjaskeggjum sé fyrir beztu. Peningar eru ó- þekktir á Kókoseyjum. I þeirra stað hefur konungurinn látið gera sérstakar plötur úr „celluloid”, sem þegnarnir nota sín á milli sem gjaldmiðil. 1 nóvembermánuði 1914 gerðust eftirminni- legir atburðir á Kókoseyjum. Og þeirra mun minnst, meðan brimið á grunninu út af eyjun- um brýtur á gráum skipsskrokk með sundur- skotna lyftingu. Það er flakið af gömlu „Emd- en”, þýzka herskipinu, sem gat sér mikla frægð í byrjun Heimsstyrjaldarinnar. Fyrir- liðinn hét Karl von Miiller, sægarpur hinn mesti og ráðkænn með afbrigðum. Þrjá mán- uði samfleytt var hann á eltingarleik eftir kóngurinn par skipum Bandamanna. Fyrir Englendingum einum sökkti hann ekki minna en 100,000 smálestum. „Emden” hafði 3 reykháfa. En einn góðan veðurdag setti von Muller upp fjórða reykháfinn, og þá þekktu óvinirnir hana ekki. Smaug hún þannig gegnum greip- ar 23 herskipa, sem öll voru að leita hennar, og lagðist í höfn á Pulo Pinang á suðvestur- strönd Indlands. Þar skaut hún niður rúss- neskt herskip og annað franskt, sem bæði héldu að þetta væri enskt skip. Og einn góðan veðurdag varpaði „Emden” akkerum við Kókoseyjar. Hópur sjóliða gekk á land til þess að ónýta símstöðina og slíta þannig símasambandið milli Englands og Ástralínu. en brezku símaþjónamir voru fljótir til og tókst að senda skeyti til Ástra- líu, áður en sambandinu var slitið. Var nú brugðið skjótt við og ástralska herskipið „Sidney” sent á vettvang. Réðist það á „Emd- en” og eftir stuttan bardaga var flak hennar eitt eftir á grunninu, þar sem það stendur enn. Karl von Miiller var handtekinn og send- ur til Englands, en hóp af skipshöfninni tókst að komast undan yfir í seglskip, sem Kókos- eyjakóngur átti og sigla því burt..

x

Stundin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stundin
https://timarit.is/publication/737

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.