Stundin - 01.08.1940, Síða 43
STUNDIN
43
Á ég að segja þér nokkuð? Náungi nokkur heima í sveitinni
kom fyrir rafmögnuðum ísskáp á brunnlokinu hjá sér, en
lokið brast og skápurinn féll ofan í brunninn. En þar með var
nú ekki sú saga búin, því áður en maðurinn hafði fengið sér
tæki til að ná upp skápnum var vatnið í brunninum orðið að
einni íshellu, og tók það hann sex vikur að þíða úr brunnin-
um áður en hann gæti losað um skápinn.
Mr. Slierman Miles er nafn
þessa manns og hefur hann
með höndum hina mestu virð-
ingastöðu i Bandaríkjahem-
um, en það er yfirumsjón með
þeirri stofnun hermálanna er
nefna mætti gáfnarannsókn-
ai'stofuna, en þar er með vís-
indalegum rannsóknum metið
og vegið gáfnafar þeirra, er
gegna skulu ábyrgðarstöðum.
Mr. Sherman var til skamms
tíma hemaðarmálaráðunaut-
ur Bandaríkjanna í London.
Mönnum er enn í fersku
minni flugafrek Irans Dougl-
as Corrigan, sem fyrir tveim-
ur árum flaug yfir Atlants-
hafið á gömlu landflugvélar-
skrifli, er hann hafði keypt á
uppboði fyrir þrjú hundruð
dollara. Fáir menn munu
hafa vakið jafn skjóta eftir-
kt á sér og þessi ungi mað-
, jafnvel er talið að sjálfur
LJndberg hafi öfundað hann
frægðinni. 1 nokkrar vik-
var nafn þessa unga
manns á hvers mann vörum
um allan heim, ríkisstjórnir
o;; bæjarráð beggja megin
Atlantshafsins létu sér ant
um að sýna honum sóma, og
kvikmyndakóngamir í Holly-
wood hugðu gott til glóðar-
innar, að þeir gætu komið
frægð hans í peninga, réðu
hann í þjónustu sína og guldu
honum ofurkaup. En Irinn
ungi tók allri þessari upphefð
með jafnaðargeði, og auðvit-
að þáði hann boð kvikmynda-
konganna, og önnur tækifæri,
er honum buðust, til að afla
sér fjár, en þó hjónabandstil-
boðum dollaraprinsessanna
rigndi yfir hann frá degi til
dags, sinnti hann því engu.
Meðan fáir þekktu hann var
hann trúlofaður írskri
kennslukonu í Suðurríkjunum
og framinn fékk hann ekki til
að breyta þeirri skoðun, að
hún bæri af öðrum konum.
Þau giftu sig í fyrra og búa
í Los Angeles. Fyrir nokkr-
um vikum eignaðist kennslu-
konan son er var vatni ausinn
og nefndur Douglas Orville
Corrigan. Foreldrar hans
hafa ákveðið að hann skuli
verða flugmaður þegar fram
líða stundir og helzt stjórna
flugfari milli Bandaríkjanna
og Irlands.