Morgunblaðið - 23.12.2008, Blaðsíða 29
návist sinni og því kvaddirðu okkur.
Viltu líta til með okkur og senda
okkur brosið þitt áfram.
Þin tengdadóttir,
Linda.
Minningar 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2008
Afi minn var maður fárra orða
en góðhjartaður.
Því hef ég þetta stutt, í anda
hans.
Elsku afi, ég hef þekkt þig frá
fæðingu, en finnst ég samt ekki
hafa þekkt þig nógu vel. Þú
munt alltaf eiga stað í hjarta
mínu og ég mun aldrei gleyma
þér, svo lengi sem ég lifi.
Ég mun alltaf sakna þín.
Þitt barnabarn,
Gabríel.
Kæri afi, þú varst mér ynd-
islegur, svo var alltaf mjög
gaman þegar jólin voru. Þá
lokkaðir þú mömmu og pabba
til að leyfa mér að opna jóla-
pakka áður en við borðuðum á
jólunum. Svo þegar við komum í
heimsókn bauðstu okkur alltaf
upp á kökur eða eitthvað svo-
leiðis. Þú tókst alltaf upp á ein-
hverju skrítnu eins og þegar þú
settir vettlinga á eyrun, ha, ha,
já það var fyndið. En það lét þig
ekki vera svona yndislegan,
heldur hvernig skapi þú varst í,
þú varst alltaf glaður og ánægð-
ur.
Kveðja, þitt barnabarn
Bára Sara.
HINSTA KVEÐJA
Faco. Á kvöldin var hins vegar
saumað á frændfólkið sem og
vandalausa. Ég man eftir herrabux-
um sem runnu út úr saumavélinni á
ógnarhraða á bæði litla og stóra
frændur, skipt var um rennilása og
ýmislegt fleira. Þá eru ótaldar flík-
urnar sem hún saumaði á mig. Sína
var smekkvís á fatnað og litasam-
setningar og hafði orð á þegar fatn-
aðurinn var að hennar skapi.
Sína var mikill tónlistarunnandi
og söng sópran í ýmsum kórum og
síðast í kirkjukór Hallgrímskirkju.
Hún kynnti mér undraheim klass-
ískrar tónlistar enda átti hún allgott
plötusafn og urðu sumar söngkon-
urnar eins og mínar bestu vinkonur
svo oft hafði ég hlustað á söng
þeirra.
Vífilsgatan var oft eins og um-
ferðarmiðstöð þar sem frændfólk,
vinir og kunningjar komu og stöldr-
uðu við. Sumir komnir langt að,
jafnvel erlendis frá, aðrir utan af
landi eða bara úr borginni. Og allir
fengu góðan viðurgjörning og ber
þar helst að nefna hinar heims-
frægu pönnukökur hússins, ýmist
með sykri eða rjóma. Sína var höfð-
ingi heim að sækja og veitti öllum
vel af sínum litlu efnum.
Sína réðst í það þrekvirki á efri
árum að breyta kjallaranum í litla
íbúð. Sína kvartaði aldrei undan því
að eitthvað væri erfitt eða ógerlegt.
Hún gekk bara í hlutina. Óheiðar-
leika eða óréttlæti þoldi hún hins
vegar ekki.
Börnin mín áttu síðar athvarf í
kjallaranum hjá Sínu. Og alltaf var
Sína tilbúin að rétta hjálparhönd.
Sína var mikil barnagæla og má
segja að börn væru hennar líf og
yndi. Þegar Sína var komin á
Hrafnistu og ég kom í heimsókn
með ömmustelpurnar mínar var það
segin saga að ég var virt viðlits í
hófi en athyglin öll á litlu stúlk-
unum. Þá var spurt um heiti og ald-
urinn talinn á fingrunum og mikið
hlegið ef einhverju skeikaði í fingra-
talningunni. Það var sama hve dag-
urinn hafði verið erfiður Sínu, því
ekki voru henni allir dagar jafn-
góðir, hún geislaði öll af gleði þegar
lítil hönd var lögð í lófa hennar.
Nú er komið að leiðarlokum og á
ég Sínu margt að þakka.
Blessuð sé minning hennar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V.Briem.)
Eyrún Ingibjartsdóttir.
mbl.is/minningar
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
TRYGGVI MARTEINSSON TAUSEN,
Þverbrekku 4,
Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn
21. desember.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Ingibjörg Hafberg,
Anna D.T. Tausen, Gísli Björnsson,
Vilborg Á.T. Tausen, Ásbjörn Jensson,
Marteinn Ó.T. Tausen,Vignir L. Jónsson,
Tryggvi Dór, Sigurbjörn, Ingibjörg Huld, Elmar Gísli,
Egill og Sólveig.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem vottuðu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför hjart-
kærrar móður okkar og tengdamóður,
ÁSTU GUNNÞÓRUNNAR ÞÓRARINSDÓTTUR
frá Höfða,
Vatnsleysuströnd,
Sóltúni 2,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-
heimilisins Sóltúns fyrir frábæra umönnun og aðhlynningu
meðan hún átti heimili þar.
Guð blessi ykkur og gefi ykkur öllum gleðilega jólahátíð.
Guðrún Jóna Jónsdóttir, Karl Hirst,
Þórunn Bjarndís Jónsdóttir,
Guðbjörg Kristín Jónsdóttir, Örn Harðarson,
Anna Jónsdóttir, Friðrik Georgsson,
Gróa Margrét Jónsdóttir, Hákon Guðmundsson,
Ingigerður Jónsdóttir, Stefán Eggertsson,
Jón Ástráður Jónsson, Ingibjörg Elín Bjarnadóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur
samúð og hlýhug við fráfall og útför ástkærrar
sambýliskonu, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
MÁLHILDAR SIGURBJÖRNSDÓTTUR,
til heimilis Heiðarbrún,
áður Holtsgötu 14a,
Reykjavík.
Arthur Karl Eyjólfsson,
Sigmundur Karlsson, Linda B. Sigurðardóttir,
Unnur Sigurbjörg Karlsdóttir,
Karl Sesar Karlsson, Þorbera Fjölnisdóttir,
Þóra Lind Karlsdóttir, Salómon V. Reynisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÓSKAR HRAUNDAL,
Hvassaleiti 56,
Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut
laugardaginn 20. desember.
Útförin verður frá Grensáskirkju þriðjudaginn
30. desember kl. 13.00.
Pálína Hraundal,
Sigrún Óskarsdóttir,
Lúðvík Hraundal,
Kristín Hraundal, Tryggvi Jónasson,
Grétar Óskarsson, Steinunn Thorarensen,
afabörn og langafabörn.
✝
Elskuleg dóttir mín, systir, mágkona og frænka,
SIGRÍÐUR HULDA SIGURÞÓRSDÓTTIR,
Mururima 4,
Reykjavík,
lést föstudaginn 19. desember.
Guðrún Karlsdóttir,
Áslaug Sigurþórsdóttir, Hannibal Kjartansson,
Gunnar Sigurþórsson, Ragnheiður Sigurþórsdóttir
og systkinabörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
GUÐRÚNAR ZAKARÍASDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Sunnuhlíðar.
Fyrir hönd barnabarna og barnabarnabarna,
Svavar Sölvason, Valborg Sigurðardóttir.
✝
Faðir minn,
ØIVIND SOLBAKK
tónlistarkennari,
R.C.Efferssöesgt 12,
Torshavn, Færeyjum,
áður til heimilis Stekkum 19,
Patreksfirði,
lést fimmtudagskvöldið 18. desember á Landssjúkrahúsinu í Torshavn.
Fyrir hönd aðstandenda,
Tone Solbakk.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför okkar ástkæra
JÓNS HALLDÓRSSONAR
húsasmíðameistara
frá Arngerðareyri.
Steinunn Jónsdóttir,
Halldór Jónsson, Rannveig Jónsdóttir,
Kristín S. Jónsdóttir, Óli Hilmar Briem Jónsson,
Guðrún S. Jónsdóttir, Þórður Ingvi Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
TEITUR MAGNÚSSON
skipstjóri,
Kirkjulundi 8,
Garðabæ,
lést á St. Jósefsspítala Hafnarfirði, laugardaginn
20. desember.
Guðný Sæmundsdóttir,
Margrét Teitsdóttir, Jón Ásgeir Eyjólfsson,
Magnús G. Teitsson, Erla S. Ragnarsdóttir,
Oddný S. Teitsdóttir, Ari F. Steinþórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
ANNA TRYGGVADÓTTIR,
Hamraborg 32,
Kópavogi,
lést á Hrafnistu Vífilsstöðum mánudaginn
15. desember.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánu-
daginn 29. desember kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeir sem vildu minnast
hinnar látnu láti líknarstofnanir njóta þess.
Tryggvi M. Þórðarson, Selma Þórðardóttir,
Agnes Þöll Tryggvadóttir, Hjalti Lýðsson,
Þórður M. Tryggvason,
Egill Andri Tryggvason.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, systir og mágkona,
HANNA EDDA HALLDÓRSDÓTTIR,
Hvassaleiti 157,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
sunnudaginn 21. desember.
Jón Egill Sveinbjörnsson,
Hanna Dóra Ólafsdóttir,
Gunnar Halldórsson, Svenný Hallbjörnsdóttir,
Páll Einar Halldórsson, Bára Melberg Sigurgísladóttir,
Gyða S. Halldórsdóttir, Sigurjón Bjarnason,
Margrét Pálmadóttir, Hreinn Mýrdal Björnsson
og aðrir vandamenn.