Árdís - 01.01.1949, Page 33

Árdís - 01.01.1949, Page 33
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna 31 þangað sóttu menn á vetrin úr öðrum hlutum nýlendunnar. Mikl- eyjarbúar voru þannig betur settir en aðrir nýlendumenn í þá daga, en þó gátu þeir ekki veitt sér nema brýnustu nauðsynjar íyrstu árin. Amma mín, Margrét á Reynistað, sagði mér frá því hve hún hefði saknað þess að fá aldrei kaffisopa, en svo hugkvæmdist henni að brúna hveitikorn, mylja það og nota það sem kaffi og þótti henni það allgott. Te var búið til úr laufum af lyngi; það var nefnt Indíána te. Lögur úr birkitrjám var soðinn niður og notaður sem sykur. Brauðgerðin var einföld fyrst í stað — ílatkökur steiktar ofan á stóarlokunum. Eina kú hafði afi minn keypt á Gimli þegar hann kom 1876, og átti hann þá eftir aðeins 25 cent í vasanum. Þeir, Sigurður Erlendsson og hann réru með fjölskyldur sínar á smábát frá Gimli og norður til Mikleyjar — 40 mílur. Kýrin var með í ferðinni, hefir sennilega verið teymd norður með ströndinni og svo lagt á stað með hana á dalli eða fleka yfir til eyjarinnar. Myrkur skall á áður en eyjunni var náð og kýrin varð viðskila við bátinn og bjóst enginn við að sjá hana framar. Ferðafólkið náði landi vestan- verðu á eyjunni, kynti eld og bjó um sig eins og bezt það gat, en illa leið því, því sárt var að missa kúna. — Nokkru seinna heyrir það ógurlegan skruðning í skóginum, eins og einhver afarstór skepna væri að brjótast í gegnum hann. Má nærri geta að því hefir ekki orðið um sel. Skepna þessi ryðst nær og nær, rekur upp ógurlegt öskur og hleypur til þeirra. Þar var þá kýrin komin; hún hafði getað svamlað til lands, en á öðrum stað, og sótti svo þangað sem eldurinn var. Þetta var mikið lán því kýrin var sannar- leg búbót og kom sér vel fyrir fleiri; mjólkinni var skipt upp á milli fjögra og fimm fjölskyldna. Fyrsta veturinn, þegar hungrið svarf sem sárast að fólkinu, var amma mín einn dag að ganga meðfram skógarjaðrinum. Þá sér hún hvar villidýr, sennilega úlfur eða minkur, kemur úr skóginum með héra (rabbit) í kjaftinum. Hún grípur þegar lurk og ræðst að dýrinu og nær af því héranum; það kvöld gat hún gefið fólki sínu góða máltíð. Amma mín lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna. — Ég minnist þess hve hún var fljót að tína ber; mun hún fljótt hafa lært að notfæra sér þau, og allt annað matar- kyns, er umhverfið lét í té. Hún hjálpaði manni sínum til að ryðja
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Árdís

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.