Árdís - 01.01.1949, Page 48

Árdís - 01.01.1949, Page 48
46 Á R D í S frá íslandi árið 1890, og með fjölskyldu sinni settust þau að i Garðar byggðinni í N. Dak. Þar tilheyrðu þau um margra ára skeið Garðar söfnuði. Síðar voru þau í Winnipeg meðlimir Fyrsta lút. safnaðar. — Magnea og frú Lára Bjarnason voru systur. ☆ ☆ ☆ ☆ Helga Björnson F. 18. jan. 1842 — D. 16. des. 1932. Kona Jóns Björnssonar frá Héðinshöfða í Þingeyjarsýslu, kom til þessa lands, ekkja með ungum syni sínum, Kristjáni Benedikts- syni. Á fyrstu árum í Nýja íslandi giftist hún Jóni Björnssyni og voru þau með frumherjum Argyle byggðar. Síðustu ár þeirra bjuggu þau að Baldur, Man. Helga var meðlimur Kvenfélags Frelsissafnaðar. ☆ ☆ ☆ ☆ Caroline Christopherson F. 11 maí 1856 — D. 9. des. 1923. Fædd í þessu landi, dóttir William Taylor, bróður John Taylor umboðsmanns canadísku stjórnarinnar í Nýja íslandi. Seint á vetri 1876 voru gefin saman í hjónaband af kynblendinga presti, Sigurður Chirstopherson og Caroline Taylor, brúðhjónin öðrumegin bólusóttvarnarlínunnar og presturinn hinumegin. Með Skafta Arasyni og Kristjáni Jónssyni fór Sigurður vestur og nam fyrstur land í Argyle byggð, og þar bjuggu þau hjón og voru vel starfandi meðlimir í Frelsissöfnuði. Síðan fluttu Christophersson hjónin til Crescent, B. C. og bjuggu þar til æfiloka. Susan, systir Mrs. Christopherson var kona séra Halldórs Briem. Báðar þær systur töluðu íslenzku og voru heima hjá sér í íslenzkum félagsskap. ☆ ☆ ☆ ☆ Rannveig Jónasson F. 26. ágúst 1853 — D. 7. ágúst 1916. Kom frá íslandi 1876 þá nýgift Sigtryggi Jónassyni. Bræður hennar voru Jóhann og Jakob Briem í þessari álfu og á íslandi, sálmaskáldið, vígslubiskup séra Valdimar Briem. Hún tilheyrði Fyrsta lút. söfnuði í Winnipeg, en að öðru leyti gaf hún sig ekki mikið að félagsmálum. Rannveig var frábærlega vel gefin og víð- lesin. Á heimili þeirra var gestkvæmt og skemtilegt að koma.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Árdís

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.